Hitaveituborun Tungudal – 57°C, 50 l/sek, 762 m
Grein/Linkur: Aukin bjartsýni vegna hitaveituholunnar á Ísafirði
Höfundur: Oddur Ævar Gunnarsson Vísi
.
.
Júní 2024
Aukin bjartsýni vegna hitaveituholunnar á Ísafirði
Aukinnar bjartsýni gætir hjá forsvarsmönnum Orkubús Vestfjarða varðandi nýtingu jarðhita til upphitunar húsa á Ísafirði. Jarðhitaleit í Tungudal miðar ágætlega og hefur borholan nú verið dýpkuð niður á 762 metra dýpi.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í tilkynningu frá forsvarsmönnum Orkubúsins. Eins og fram hefur komið er nærri sextíu stiga heitt vatn fundið á Ísafirði. Vatnið fannst í lok maí. Fundurinn einstakur enda neyddist Orkubú Vestfjarða í vetur til að brenna olíu fyrir yfir hálfan milljarð króna.
Afkastameiri en talið var í fyrstu, með fyrirvara
„Í síðustu viku var lokið við að rýma holuna niður á 584 m dýpi og var í kjölfarið farið í hitamælingu og svokallað blásturspróf, sem er skammtímamæling á afkastagetu holunnar. Reiknað er með að vinnsluhitastig holunnar geti orðið 56 til 57°C. Blástursprófanir sem gerðar voru á holunni gáfu til kynna að hún væri talsvert afkastameiri en talið var í fyrstu og augnabliksdæling skilaði 45 til 50 l/sek við ásættanlegan niðurdrátt í holunni.“
Þó er tekið fram í tilkynningunni að þetta séu þó engan veginn staðfestar tölur um langtímaafkost holunnar. Langtímadæling sé nauðsynleg til að meta varanlega afkastagetu hennar.
Þá kemur fram að verið sé að útbúa borplan fyrir nýja rannsóknarholu í grennd við hina. Reiknað er með að hún verði boruð niður á fimmhundruð metra dýpi. Vænst er að holan muni gefa frekari upplýsingar um staðsetningu heitavatnsæðarinnar, umfang svæðisins og afkastagetu þess. Þær upplýsingar liggi vonandi fyrir innan fárra vikna.
„Aukinnar bjartsýni gætir því hjá Orkubúinu varðandi nýtingu jarðhita til upphitunar húsa á Ísafirði, en að öllum líkindum verður notuð varmadæla til að skerpa á hitanum og nýta jarðhitann sem best þegar þar að kemur.“