Coda Terminal – Straumsvík, iðnaðarsvæðið, framtíðin
Grein/Linkur: Straumsvík, iðnaðarsvæðið og framtíðin
Höfundur: Ólafur Elínarson Carbfix
.
.
Júlí 2024
Straumsvík, iðnaðarsvæðið og framtíðin
Árlega heimsækja tugþúsundir einstaklinga á öllum aldri niðurdælingarsvæði Carbfix á Hellisheiði vegna áhuga á því hvernig Íslendingar nýta endurnýjanlega orku og hvernig við tökumst á við loftslagsvandann með aðferðum Carbfix.
Aðferðin er bæði örugg og sönnuð og er leiðandi í heiminum vegna þess að hún er vottuð, þrautreynd, hagkvæm og varanleg. Enda er aðferðin byggð á sömu aðferðum og náttúran sjálf nýtir við að binda CO2. Regndropar grípa CO2 í andrúmsloftinu og þegar droparnir mæta bergi verða til steindir með tíð og tíma.
Carbfix hefur síðan 2014 dregið úr losun á CO2 og brennisteinsvetni frá Hellisheiðarvirkjun, fangað CO2 beint úr andrúmslofti með svissneska fyrirtækinu Climeworks frá árinu 2017 og flutt inn CO2 frá Sviss síðan 2023 í samvinnu við ETH háskólann í Zurich. Í öllum tilfellum hefur þetta CO2 steinrunnið í berginu djúpt undir yfirborðinu án nokkurra vandkvæða.
Mikil og lífleg umræða hefur átt sér stað um loftslagsverkefnið Coda Terminal sem Carbfix er að undirbúa og verður flaggskip í lausnum Íslands gegn hlýnun jarðar og hefur verið sýnt mikið traust með því hljóta stærsta styrk sem Ísland hefur fengið frá Evrópusambandinu.
Mörg sem taka þátt í umræðunni nýta sér upplýsingar í umhverfismatsskýrslunni sem unnin var fyrir verkefnið og fögnum við því og hvetjum öll til að kynna sér hana og heimasíðu verkefnisins sem hefur að geyma áreiðanlegar upplýsingar Coda Terminal. Sérstaklega hvernig Carbfix mun lágmarka þau umhverfisáhrif sem verkefnið hefur.
Tilgangur umhverfismatsskýrslu er einmitt það, að finna leiðir til að vinna gegn þeim áhrifum sem verkefni geta mögulega valdið.
Þess vegna eru tilgreindar mótvægisaðgerðir og út frá þátttöku stofnana, sérfræðinga og almennings bætist við þekking í ferlinu. Það er einmitt mikilvægt að leggja áherslu á að umhverfismatsskýrsla er ekki lokaafurð verkefna. Hún er tæki til þess að skapa upplýsta umræðu byggða á bestu þekkingu á hverjum tíma.
Coda Terminal verður hljóðlaus viðbót við iðnaðarsvæði Hafnfirðinga, þar sem ekki þarf að flytja neitt á vegunum, með engan útblástur á svæðinu. Í lögnunum neðanjarðar mun flæða 96% vatn og 4% CO2 á hverjum tíma sem er minna CO2 en stafar frá núverandi bílaumferð á svæðinu.
Verkefnið gæti orðið upphaf að nýrri hugsun í iðnaði á svæðinu þar sem aðstæður og umhverfi geta hæglega orðið með betra móti en nú er. Bæði núverandi og ný fyrirtæki geta unnið saman að því að hafa raunveruleg áhrif á umhverfi og náttúru, ásamt því að takast á við loftslagsvandann á þann hátt að eftir verður tekið. Það er spennandi framtíð.