Rafeldsneyti – Orkuberi, Vetnisknúnar vélar
Grein/Linkur: Nýsköpun véla og eldsneytis
Höfundur: Ari Trausti Guðmundsson
.
.
Orkuberi
Hugtakið orkuberi nær yfir marga orkumiðla sem eru búnir til á framleiðslustað eða berast þaðan á viðkomustað til frekari vinnslu eða til notenda – t.d. olíuhreinsunarstöð eða vetnisölustöð eða iðjuveri þar sem rafeldsneyti er framleitt. Kol og dísilolía hafa lengi verið orkuberar t.d. í húshitun og á bíla og smám saman mun bera æ meira á vetni og ammoníaki eða lífdísli sem orkuberum. Hlutföll ólíkra orkubera við full orkuskipti koma senn í ljós.
Vetnisknúnar vélar
Brunavélar eða rafmótorar (algengast) sem knúnir eru vetni. Það er jafnan framleitt með því að kljúfa vatn með raforku. Vetni er hægt að geyma háþrýst sem gas eða fljótandi á geymum eða í eins konar afar fíngerðum málm„svömpum“ en líka sem hluta ammoníaks.
Ammoníak helst sem eitruð lofttegund (gas) við venjulegar útiaðstæður og er efnablanda vetnis og niturs (köfnunarefnis). Nitur er meginfrumefnið í loftinu og þaðan getur efnið fengist til framleiðslu ammoníaks ásamt framleiddu vetni. Ammoníak sem vetnisberi er haft til reiðu á sérstökum geymum. Unnt er að losa um vetnið og skila nitrinu til baka. Meirihluti vetnisbíla eru rafbílar með efnarafölum (fuel cells) þar sem vetni sameinast súrefni. Rafeindir losna og mynda rafstraum á rafmótora og vatsgufu að auki. Aðrir vetnisbílar nýta bruna vetnis.
Lífeldsneyti
Lífeldsneyti er úr lífrænum efnum, sem framleitt er með endurnýjanlegri orku úr föstum lífmassa (t.d. plönuleifum) eða lífrænum vökva, eða það er náttúrulegt gas (t.d. metan úr sífrera, gömlum jarðklaka). Unnt er að framleiða eldsneytisolíu svipaða dísilolíu en einnig þotu/ skrúfuþotueldsneyti í þessum flokki eldsneytis.
Rafhleðslutæki
Rafhleðslutæki eru afar algeng, allt frá hleðslutækjum fyrir síma til öflugra hleðslustöðva fyrir þung ökutæki, vinnuvélar og skiparafmagn, svo dæmi séu nefnd. Enn er mest um hleðslustöðvar (stundum nefndar orkustöðvar) við heimili og ýmiss konar atvinnubyggingar eða opinberar byggingar, auk stöðva hjá orkusölufyrirtækjum.
Heimahleðslustöð gæti verið með hleðslugetu (afli) frá 4 til 8 kW (eins fasa stöð) upp í 10 til 20 kW (þriggja fasa stöð).
Hraðhleðslustöðvar fyrir íbúðarhús eru af stærðargráðu 30 til 50 kW og hraðhleðslustöðvar orkusala t.d. 100 til 225 kW.
Mikil eftirspurn er þegar til orðin eftir hleðslustöðvum um allt land. Þeir sem kaupa hleðslustöð fyrir íbúðarhúsnæði fá fulla endurgreiðslu virðisaukaskatts af kaupverði og vegna vinnu við uppsetningu.