Grensásvegur 12 – 785 Milljónir
September 2017
Borgarráð samþykkti á fimmtudaginn að heimila skrifstofu eigna og atvinnuþróunar að kaupa 24 íbúðir á Grensásvegi 12. Kaupverðið er 785 milljónir króna.
Í greinargerð kemur fram að kaupin á þessum íbúðum séu liður í aukningu á félagslegu húsnæði, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.
Íbúðirnar verða í núverandi húsi á annarri og þriðju hæð og í óbyggðri fjórðu hæð. Samanlögð birt stærð íbúðanna verður 1.424,9 fermetrar. Íbúðirnar á annarri og þriðju hæð eru í byggingu en þeim verður breytt, auk þess sem inndreginni fjórðu hæð verður bætt við.