Skuldabréfaútboð OR – Græn, nafnvirði, vextir
Grein/Linkur: Niðurstaða útboðs grænna skuldabréfa 14.maí
Höfundur: Orkuveitan
.
.
Maí 2024
Niðurstaða útboðs grænna skuldabréfa 14.maí
Útboði á grænum skuldabréfum Orkuveitu Reykjavíkur (Orkuveitunnar) lauk í dag, 14. maí 2024. Gefin voru út skuldabréf í skuldabréfaflokkunum OR020934 GB og OR180255 GB.
OR020934 GB ber fasta verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 2. september 2034. Áður hafa verið gefin út bréf að nafnverði 24.262 m.kr. í flokknum.
Heildartilboð í flokkinn voru samtals 2.820 m.kr. að nafnvirði, þar sem ávöxtunarkrafa var á bilinu 3,99% – 4,08%. Tilboðum að fjárhæð 2.780 m.kr. að nafnvirði var tekið á ávöxtunarkröfunni 4,06%.
OR0180255 GB ber fasta verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 18. febrúar 2055. Áður hafa verið gefin út bréf að nafnverði 31.736 m.kr. í flokknum.
Heildartilboð í flokkinn voru samtals 810 m.kr. að nafnvirði, þar sem ávöxtunarkrafa var á bilinu 3,45% – 3,55%. Tilboðum að fjárhæð 610 m.kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 3,50%.
Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq á Íslandi með sjálfbær skuldabréf.