Hitun húsa – Ný nálgun, ný sviðsmynd

Grein/Linkur:  Ný sviðs­mynd kallar á nýja nálgun í hitun húsa

Höfundur: Böðvar Ingi Guðbjartsson, formaður Félags pípulagningameistara

Heimild: 

.

.

Janúar 2024

Ný sviðs­mynd kallar á nýja nálgun í hitun húsa

Böðvar Ingi Guðbjartsson

Við búum hér á landi við þau miklu forréttindi að geta notast við jarðvarma við upphitun húsa. Ákvörðun um að ráðast í þetta mikla verkefni var á sínum tíma aðdáunarverð og gjörbreytti lífsgæðum almennings. Með tímanum höfum við þó orðið góðu vön og þykir stöðugur aðgangur að jarðvarma þar sem hann er til staðar orðinn sjálfsagður. Yfirstandandi jarðhræringar á Reykjanesinu og sviðsmyndir sem ógnað hafa rekstri orkuversins á Svartsengi hafa þó vakið fjölmarga pípulagningameistara til umhugsunar um hvernig við hönnum lagnakerfi, enda sér Svartsengi yfir 12.000 heimilum og atvinnurekendum á Reykjanesinu fyrir húshitun.

Sviðsmyndin er snýr að hitun húsa hefur tekið á sig aðra mynd og kallar á endurhugsun á því hvernig við hönnum og setjum upp lagnakerfa í mannvirkjum sem nýta jarðvarma til upphitunar. Taka þarf með í reikninginn að orkuverin geta lent í vanda eins og raungerðist á Reykjanesinu. Jarðhræringar tóku lagnir í sundur og reynt er að verja orkuverið með varnargörðum fyrir mögulegu eldgosi sem ógnað getur starfseminni.

Með lítilli fyrirhöfn þarf að vera hægt að koma í veg fyrir að lagnir húsnæða frostspringi enda veldur slíkt gríðarlegu tjóni á mannvirkjum. Tækjarými framtíðarinnar í mannvirkjum ættu því að vera þannig útbúin að hægt verði að tengja við þau rafmagns- eða gashitakúta, olíu eða sambærilegu með lítilli fyrirhöfn. Allar lagnir ættu að vera á lokuðum kerfum með frostlegi vegna þess að þegar hitastig utandyra fer niður fyrir frostmark mun það ná til lagnakerfa á skömmum tíma. Vatnið hefur þann eiginleika að þegar það byrjar að frjósa þenst það út og lagnir og ofnar verða fyrir frostskemmdum.

Tækjarými framtíðarinnar þurfa að taka mið af þessu og þurfa að vera þannig útbúin að hægt verði með lítilli fyrirhöfn að breyta um orkugjafa ef orkuverin lenda í vanda eins og fyrr segir. Slíkt kallar á breytta hitamenningu okkar sem starfa við pípulagnir ásamt hönnuðum lagnakerfa og vissulega aðkomu stjórnvalda við endurskoðun regluverks.

Árið 2003 gaf Rannsóknarstofnun byggingariðnaðarins út RB blað um vatnsveitu-, hitaveitu- og fráveitulagnir í dreifbýli sem vert væri að endurskoða í ljósi stöðunnar en taka mætti mið af þeim upplýsingum sem þar koma fram til að koma í veg fyrir vatnstjón. Félag pípulagningameistara hefur einnig unnið einfaldar leiðbeiningar fyrir neytendur um hvernig hægt er að koma í veg fyrir vatnstjón sem finna má á heimasíðu félagsins.

Félag pípulagningameistara er tilbúið að leggja sitt af mörkum við endurskoðun á þessu verklagi enda kallar ný sviðsmynd á nýja nálgun.

Fleira áhugavert: