Fráveitur – Hvað er tveggja þrepa hreinsun?
Grein/Linkur: Tveggja þrepa hreinsun
Höfundur: Umhverfisstofnum
.
Tveggja þrepa hreinsun
Megin krafan í hreinsun á skólpi er að fráveituvatn skuli hreinsað með tveggja þrepa hreinsun þegar losun er:
- Meiri en 2.000 pe. í ferskvatn og ármynni.
- Meiri en 10.000 pe. í strandsjó.
Á kröfu um tveggja þrepa hreinsun eru þó undanþágur en þar sem viðtaki hefur verið skilgreindur síður viðkvæmur (að undangenginni rannsókn á áhrifum skólps á viðtaka og staðfestingu þess efnis frá Umhverfisstofnun) er nægjanlegt að notast við eins þreps hreinsun (sjá gr. 20.3 og 20.4 í fyrrgreindri reglugerð). Þar sem um er að ræða viðkvæm svæði þarf meira en tveggja þrepa hreinsun.
Hreinsunarkröfur
Tveggja þrepa hreinsun er meiri hreinsun en eins þreps hreinsun og felur í sér líffræðilega hreinsun sem fylgt er eftir með botnfellingu eða öðru ferli sbr. kröfur í I. Viðauka, B-hluta og 1. töflu. Rotþró og siturlögn telst til tveggja þrepa hreinsunar en þar fer t.d. fram botnfelling og súrefnislaust niðurbrot á lífrænu efni í rotþró og í siturlögn fer fram síun og frekara niðurbrot örvara.
Tafla 1 í reglugerð 798/1999. Losunarmörk fyrir skólp frá skólphreinsistöðvum fyrir þéttbýli (tveggja þrepa).
Færibreytur |
Styrkur |
Lágmarkslækkun miðað við hundraðshluta |
Líffræðileg súrefnisþörf (BOD við 20°C) |
25 mg/l O2 |
70 til 90 |
Efnafræðileg súrefnisþörf (COD) |
125 mg/l O2 |
75 |
Heildarmagn svifagna (er valfrjáls krafa) |
35 mg/l 35 vegna 22. gr. (meira en 10.000 p.e.). 60 vegna 22. gr. (2.000 – 10.000 p.e.) |
90 90 vegna 22. gr. (meira en 10.000 p.e.) 70 vegna 22. gr. (2.000 – 10.000 p.e.) |