Landsvirkjun vill enn minni tengingar við álverð
Landsvirkjun hagnaðist um tæpa ellefu milljarða króna í fyrra, sem er aðeins betri afkoma en árið áður. Þetta gerðist þrátt fyrir lægra verð á áli og óvissu á fjármálamarkaði. „Meginástæðan á síðasta ári var að orkusalan jókst umtalsvert, um 7% í magni, sem vann mjög á móti þeim tekjusamdrætti sem varð vegna lægra álverðs.“
Það hjálpar líka að dregið hefur úr álverðstengingum. Árið 2009 voru 2/3 af tekjum Landsvirkjunar tengdir álverði, nú aðeins 1/3. En það á að draga enn frekar úr slíkum tengingum. „Við teljum ásættanlegt að vera með ákveðna tengingu. Álið er áhugaverður málmur sem á sér bjarta framtíð. En hlutfallslega teljum við það ennþá of hátt.“
Næstu stóru orkukaupendur eru kísilverksmiðja United Silicon í Helguvík og kísilverksmiðja PCC á Bakka. Hörður býst svo við að gagnaverum fjölgi á næstu árum.
Næstu virkjanaframkvæmdir eru stækkun Búrfellsvirkjunar og Þeistareikjavirkjun. Hörður vonast til að sú næsta þar á eftir verði Hvammsvirkjun í Þjórsá. Þar þarf, að áliti Skipulagsstofnunar, að meta áhrif á útivist, ferðaþjónustu og landslag upp á nýtt og er áætlun um það nú í kynningu. Ekki er ljóst hvenær því lýkur. „Þessi ferli eru með óljósa tímaramma og oft halda aðilar ekki tímatakmarkanir þannig að það er erfitt að meta það í dag, en vonandi tekur það ekki of langan tíma.“
Heimild: RÚV