Arðurinn notaður í uppbyggingu
Ástæða þess að engin arðgreiðsla er greidd út úr Isavia til ríkisins á þessu ári er sú að nýta á fjármunina til að hækka eigið fé félagsins. „Með þessu verður Isavia betur í stakk búið til að mæta frekari fjárfestingum á komandi tímum,“ segir Ingimundur Sigurpálsson, stjórnarformaður Isavia við mbl.is.
Ingimundur bendir á að ákvörðunin hafi verið tekin í samráði við eiganda félagsins, en það er íslenska ríkið. Segir hann að betri eiginfjárstaða geri Isavia hæfara til að sækja sér lán á mörkuðum á hagstæðari kjörum, en framundan eru stórtæk uppbyggingaráform í Keflavík.
Sagt var frá væntanlegum framkvæmdum Isavia fyrr í haust á mbl.is, en þá var meðal annars haft eftir Guðna Sigurðssyni, upplýsingafulltrúa að félagið hefði frá árinu 2011 til síðasta árs aukið eigið fé sitt úr 10,9 milljörðum upp í 17 milljarða. „Líkt og mörg önnur fyrirtæki komum við illa út úr bankahruni með miklar erlendar skuldir en við höfum nýtt tækifærið til þess að safna upp góðri eiginfjárstöðu og erum vel í stakk búin til þess að fara af stað með þessar framkvæmdir,“ sagði Guðni þá.
Auk framkvæmda í Keflavík sér Isavia um rekstur og viðhald flugvalla um allt land. Ekki er þó heimilt og færa tekjur vegna Keflavíkurflugvallar í uppbyggingu annarsstaðar, en ríkið lagði í fyrra til aukið fé í uppbyggingu á nokkrum flugvöllum á landsbyggðinni.
Frétt mbl.is: Engin arðgreiðsla frá Isavia
Heimild: Mbl