Velta byggingarvöruverslana var góð í sumar
Ljóst er af veltutölum byggingarvöruverslunar að töluverður vöxtur var sumarmánuðina þrjá; júní, júlí og ágúst miðað við sama tímabil í fyrra. Þessi vöxtur endurspeglar efalaust grósku í byggingaframkvæmdum ásamt viðhaldi og framkvæmdum við endurnýjun húsnæðis. Velta í byggingavöruverslunum síðustu þriggja mánaða var 10,8% meiri en á sama tímabili í fyrra að raunvirði.
Rannsóknarsetur verslunarinnar greinir frá þessu.
Sala á mat og áfengi var heldur minni í ágúst síðastliðnum en í sama mánuði í fyrra en skýringa má leita í tímasetningu verslunarmannahelgar á milli ára. Í fyrra var stærsti verslunardagur fyrir verslunarmannahelgina í ágúst en í ár fór megnið af helgarinnkaupunum fram í júlí.
Rannsóknarsetrið bendir á að athyglisvert sé að velta í sölu á skrifstofuhúsgögnum tók mikinn kipp í ágúst, við upphaf skólaársins. Þannig jókst velta skrifstofuhúsgagna um 48,7% að raunvirði. „Má því gera ráð fyrir að betur fari um margann námsmanninn þetta haustið en í fyrra.“ Almennt er vöxtur í húsgagnaverslun á milli ára, þó heldur hafi dregið úr vextinum í ágúst. Verð á húsgögnum var 0,1% lægra í ágúst en í sama mánuði í fyrra samkvæmt verðmælingu Hagstofunnar.
Raftækjaverð lækkaði umtalsvert
Enn sem fyrr var vöxtur í sölu raftækja í ágúst í samanburði við söluna í sama mánuði í fyrra. 7,9% aukning var í sölu minni raftækja og um 6,1% í sölu stærri raftækja að nafnvirði. Árleg hefð er fyrir útsölum á raftækjum í ágúst enda jókst velta raftækjaverslana töluvert frá mánuðinum á undan. Verð á stórum raftækjum var 13,7% lægra í ágúst en í ágúst í fyrra og verð á minni raftækjum 10,4% lægra samkvæmt verðamælingum Hagstofunnar.
Verðlag á sérvöru er almennt lægra en var fyrir ári síðan. Verð á dagvöru er hins vegar 3,5% hærra en fyrir ári síðan. Í því sambandi er vert að hafa í huga hækkun á lægra þrepi VSK um síðustu áramót og lækkun vörugjalda á raftæki og sumar byggingavörur.
Heimild: Mbl