Gagnaver – Frá rafmynt til gervigreindar

Grein/Linkur:  Frá raf­mynt til gervi­greindar

Höfundur:  Valur Ægisson Landsvirkjun

Heimild: 

.

.

Frá raf­mynt til gervi­greindar

Valur Ægisson

 Breyttar forsendur fyrir rafmyntavinnslu og framþróun í gervigreind hafa leitt til mikilla breytinga á gagnaversstarfsemi. Íslenskum gagnaverum hefur gengið vel að draga úr eða hætta rafmyntavinnslu og breyta starfseminni með samningum við stór alþjóðleg fyrirtæki og stofnanir á sviði loftslagsrannsókna, fjármálaútreikninga, bílahönnunar og erfða- og líftækni.

Nýir samningar við gagnaver um forgangsorku eru aðeins fyrir hátæknistarfsemi. Landsvirkjun hefur þannig stutt við gagnaverin í þessum umbreytingarfasa en hátækniiðnaður notar almennt um helmingi minni orku en rafmyntavinnsla. Þrátt fyrir það eru efnahagsleg umsvif gagnaveranna að aukast, því fjárfesting í hátæknistarfsemi er allt að 10 sinnum meiri á hvert MW en í rafmyntum.

Gagnaverin hýsa nær alla stafræna innviði Íslands. Allar vefsíður og öpp eru hýst í gagnaverum og flestir Íslendingar nota því gagnaver á hverjum degi.

Hagnaður af rafmyntum dregist saman

Breska dagblaðið Financial Times fjallaði um gagnaver í grein nú í júlí. Þar kom fram að hagnaður af rafmyntavinnslu hafi dregist mjög saman að undanförnu. Þau gagnaver sem mest hafi stundað slíka vinnslu leiti nú logandi ljósi að nýjum viðskiptavinum. Þar hafi þeim t.d. orðið nokkuð ágengt meðal þeirra sem þurfa mikla vinnslugetu fyrir gervigreindarforrit sín. Haft er eftir forstjóra Core Scientific, eins stærsta rafmyntavinnslufyrirtækis heims, að þar á bæ sækist menn stíft eftir samstarfi á sviði gervigreindar.

Þá kemur fram í greininni að helstu tæknirisar heims, þar á meðal Microsoft, Google og Amazon, áformi að verja háum fjárhæðum til að byggja upp vinnslugetu fyrir gervigreind. Yfirleitt taki 3-5 ár að byggja öflugt gagnaver frá grunni. Sú mikla eftirspurn sem nú sé eftir vinnslugetu auki verðmæti þeirra fyrirtækja sem hafi aðgang að ódýrri orku.

Orkusalan minnkað um helming

Raforkusala Landsvirkjunar til gagnaveranna sem starfa hérlendis hefur dregist saman um helming undanfarin misseri og er nú svipuð og hún var árið 2020.

Þegar slaki var í kerfinu vegna Covid-19 og minni nýtingar stórnotenda á langtímasamningum kom sér vel að vera með viðskiptavini með sveigjanlega starfsemi sem gátu nýtt tímabundna umframorku í kerfinu sem annars hefði runnið ónýtt til sjávar.

Framþróun í gagnaversstarfsemi hefur hins vegar aukið þörf gagnavera á miklu afhendingaröryggi og því hefur eftirspurn þeirra eftir forgangsorku aukist umfram það sem hægt er að mæta. Landsvirkjun hefur undanfarið endursamið við hluta gagnaveranna hérlendis þar sem þau hafa fært sig yfir á forgangsorku vegna þessarar þróunar.

Raforkukerfið er fullselt og ekki von á auknu framboði fyrr en Búrfellslundur verður gangsettur síðla árs 2026 – ef allt gengur að óskum. Vegna þessa hefur Landsvirkjun forgangsraðað áherslum í orkusölu til næstu ára. Í forgangi er m.a. að anna eftirspurn eftir raforku til aukinnar almennrar notkunar og að styðja við aukna stafræna vegferð samfélagsins, til dæmis í gagnaverum.

Fleira áhugavert: