Orkuuskipti.is – Upplýsingavefur
Grein/Linkur: Nýr upplýsingavefur um orkuskipti
Höfundur: Landsvirkjun
.
.
Október 2022
Nýr upplýsingavefur um orkuskipti
Landsvirkjun, Samtök iðnaðarins, Samorka og Efla opnuðu upplýsingavef um orkuskipti. Vefurinn var formlega kynntur til sögunnar á fundi sem haldinn var fyrir fullum sal í Kaldalóni í Hörpu.
Á vefnum er að finna aðgengilegar upplýsingar um orkunotkun, orkuskipti og efnahagslegan ávinning Íslands af orkuskiptum. Einnig var kynnt á fundinum ný greining Eflu um efnahagsleg áhrif orkuskipta næstu áratugi.
Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hélt ávarp en auk hans tóku til máls Kristín Linda Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar, Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, Sigríður Mogensen, sviðsstjóri iðnaðar- og hugverkasviðs SI, Haukur Ásberg Hilmarsson, hagfræðingur EFLU, og Páll Erland, framkvæmdastjóri Samorku.
Landsvirkjun, Samtök iðnaðarins, Samorka og Efla opnuðu í dag nýjan upplýsingavef um orkuskipti. Vefurinn var formlega kynntur til sögunnar á fundi sem haldinn var fyrir fullum sal í Kaldalóni í Hörpu.