Kjarnorkuver, Þriggjamílnaeyju – Lokað, rifið
.
September 2019
Loka kjarnorkuverinu á Þriggjamílnaeyju
Ákvörðunin um að loka kjarnorkuverinu var tekin út frá viðskiptalegum forsendum, segir í tilkynningu Exelon. Lágt verð á jarðgasi og sílækkandi kostnaður við rafmagnsframleiðslu með vind- og sólarorku leiða til þess að reksturinn borgar sig ekki lengur.
Þetta gildir um flest eldri kjarnorkuver vestra, enda búið að loka fjölda slíkra í Bandaríkjunum á undanförnum árum. Efasemdir eru líka uppi um að þau fáu kjarnorkuver sem verið er að byggja muni standast samkeppni við gasið, sólina og vindinn þegar fram i sækir.
Alvarlegasta kjarnorkuslys Bandaríkjanna
Kjarnakljúfurinn sem slökkt var á er sá eldri af tveimur sem reistir voru á Þriggjamílnaeyju og hefur verið í notkun frá 1974. Hinn hafði aðeins verið í rekstri í nokkra mánuði þegar bilun í kælikerfi leiddi til kjarnabráðnunar og alvarlegasta kjarnorkuslyss í sögu Bandaríkjanna vorið 1979.
Þótt kjarnakljúfurinn sjálfur verði horfinn eftir þrjú ár eða svo er mun lengra í að öll ummerki um þetta mikla og alræmda orkuver hverfi. Ekki má hrófla við mörgum öðrum hlutum þess, svo sem kæliturninum, fyrr en árið 2074, einni öld eftir að kveikt var á kjarnakljúfinum.
.
.