Rottur í skolplögnum Reykjavíkur – Þær bíta ef að þeim er vegið

visir

Júní 2014

Rottur hafa undanfarið sýnt sig á óvenjulegum stöðum og hrellt fólk í borginni með stuttu millibili. Í tvígang hafa börn verið bitin. Meindýraeyðir hjá Reykjavíkurborg segir að fólk eigi alls ekki að koma nálægt dýrunum verði það þeirra vart.

Í lok síðasta mánaðar var unglingspiltur bitinn til blóðs í fingurinn af rottu í Vesturbænum. Í gær sást rotta skokka á bökkum vesturbæjarlaugarinnar og sama dag var stúlka í Hlíðunum bitin af rottu.

reykjavikRagnheiður Kolfinna Magnúsdóttir var bitinn af rottu í gær. „Ég prófaði að fara niður að skoða hana. Þá kom hún og beit mig,“ sagði Kolfinna. „Passið ykkur á rottunum, þær gætu bitið ykkur.“

Þessi óvinsælu nagdýr finnast í ræsum um alla Reykjavíkurborg að undanskildum nýrri hverfum eins og Grafarvoginum. Gömul hverfi eru helst útsett fyrir rottugangi og tilfelli þar sem dýrin gera sér hreiður upp í risi finnast þar sem enginn er umgangur í gömlum húsum og ónýtar lagnir.
„Þær finnast þar sem er bilun í skorplögnum og niðurfall opið eða slíkt. Þá er það ávísun upp á að þessi kvikyndi geta komið upp á yfirborðið,“ segir Ómar F. Dabney, meindýraeyðir hjá Reykjavíkurborg.

rottaAllt eru þetta svokallaðar Brúnrottur, vanalega um tuttugu sentímetrar með fimmtán sentímetra langt skott og nokkuð gild miðað við hagamúsina.

Hve hættulegt er þó að vera bitinn af rottu?

„Það hefur ekki reynst mér banvænt,“ segir Ómar. „En ég hvet alla þá sem verða fyrir biti af þessu dýri að fara á slysadeild. Þar reikna ég með að þeir fái viðeigandi meðferð.“

„Ég hvet bara fólk, ef það er að sjá þessi dýr og ég tala nú ekki um að brýna fyrir börnum, að koma ekki nálægt þeim. Vegna þess að ef þú ert að teygja þig í þær, að reyna að klappa þeim eða koma við þær, þá bíta þær alveg pottþétt,“ segir Ómar sem sjálfur hefur ekki tölu á hve oft hann hefur verið bitinn.

Það er ómögulegt að segja til um hve margar rottur eru í Reykjavíkurborg, en þessa dagana er verið að eitra fyrir þeim í holræsum. Þá sérstaklega á stöðum þar sem líkur eru á að lagnir séu ekki í lagi.

 

 

Heimild: Vísir

Fleira áhugavert: