Slökkt á kjarnorkuveri – Vatn til kælingar

Grein/Linkur: Slökkt á eina kjarnorkuveri Rúmeníu vegna þurrka

Höfundur: Hallgrímur Indriðason RUV

Heimild: 

.

Cernavoda-kjarnorkuverið í Rúmeníu, sem nú er verið að slökkva alveg á. EPA – Robert Ghement

.

Ágúst 2026

Slökkt á eina kjarnorkuveri Rúmeníu vegna þurrka

Byrjað er að slökkva á seinni kjarnaofninum í eina kjarnorkuveri Rúmeníu. Ástæðan er lágt vatnsborð Dónár eftir mikla þurrka. Slökkt var á þeim fyrri í síðustu viku.

Stjórnendur kjarnorkuversins í Cernadova í Rúmeníu byrjuðu í dag að slökkva á seinni kjarnaofni sínum vegna lágs vatnsborðs Dónár.

Áin hefur verið notuð til að kæla ofnana sem er nauðsynlegt til að koma í veg fyrir geislun. Af þeim sökum var slökkt á fyrri ofninum í síðasta mánuði. Stjórnendur Nuclearelectrica SA, sem reka kjarnorkuverið, hafa gripið til ýmissa ráðstafana til að koma í veg fyrir að slökkva þurfi á hinum ofninum, meðal annars með því að sprengja berg í ánni til að breyta flæði hennar. Það hefur ekki borið tilætlaðan árangur.

Hvor kjarnaofn um sig er um 700 megavött, sem er aðeins meira en Kárahnjúkavirkjun. Kjarnorkuverið framleiðir alla jafna um 20% af því rafmagni sem Rúmenar þurfa. Nú þarf að fá þann hluta með öðrum leiðum eins og vindorku og innflutningi á orku. Orkumálaráðuneytið hefur hvatt landsmenn til ábyrgrar raforkuneyslu.

Mikill hiti og þurrkar valda því að vatnsborð Dónár er svo lágt, en frá því mælingar hófust fyrir 34 árum hefur vatnsborðið aldrei verið lægra í tveimur þriðju hluta árinnar.

Aðeins einu sinni áður hefur þurft að slökkva á kjarnorkuverinu. Það var árið 2003, einnig vegna mikilla þurrka. Þá stöðvaðist framleiðslan í nokkrar vikur.

Fleira áhugavert: