Borun á heitu Vatni í Laugardal – Öryggi og Nægjusemi

Grein/Linkur:  Borað eftir heitu vatni, ár jarð­hita­leitar hjá Veitum

Höfundur:  Veitur

Heimild: 

.

.

Október 2026

Borað eftir heitu vatni í Laug­ardal

Veitur bora til að tryggja nægt heitt vatn fyrir samfélagið

Heitt vatn í miðri borg

Veitur bora eftir heitu vatni nálægt Kringlumýrarbraut við Engjateig og Bolholt. Framkvæmdin er liður í að tryggja nægt heitt vatn fyrir vaxandi samfélag og auka afhendingaröryggi hitaveitunnar.

Borun hefst í október 2026 við Engjateig og í Bolholti í nóvember. Áætluð lok við Bolholt eru í desember og við Engjateig í maí 2027.

Hvað verður gert?

Við afmörkum framkvæmdasvæðin áður en borunum er komið fyrir. Alls verða boraðar 5 holur á svæðinu, ein í Bolholti og fjórar við Engjateig.

Borinn vinnur sig niður í bergið að 800-1500 metra dýpi þar til komið er að nýtanlegu magni af heitu vatni. Á meðan borað er, er vatni dælt niður um holuna til að kæla borinn og flytja grjót og borsvarf upp á yfirborðið.

Þegar borun lýkur er holan hreinsuð og prófuð. Þær holur sem gefa nægt heitt vatn verða síðar tengdar hitaveitunni.

Að lokum er borbúnaðurinn fjarlægður og gengið frá svæðinu.

Það sem þú þarft að vita

  • Boruð verður ein hola við Bolholt haustið 2026.
  • Við Engjateig verða boraðar fjórar holur frá október fram í lok maí.
  • Framkvæmdir í heild sinni standa yfir í 8 mánuði frá september 2026 til maí 2027.
  • Framkvæmdasvæðin verða afgirt og vöktuð allan sólarhringinn.
  • Mest verður umferð um svæðið þegar borplön eru útbúin og búnaður fluttur til og frá svæðinu.
  • Við leggjum áherslu á að öryggi á og við framkvæmdasvæðið
  • Ónæði verður haldið í lágmarki.
  • Þegar hola er blásin og prófuð mun sjást gufa frá framkvæmdasvæðinu. Við upplýsum nágranna áður það gerist.

Af hverju erum við að bora?

Jarðhitinn í Laugardal hefur yljað Reykvíkingum í nær heila öld. Níu borholur eru nú þegar í notkun á svæðinu en nú bætum við fleiri holum við til að anna eftirspurn næstu ára.

Borgin stækkar og fleiri heimili þurfa heitt vatn. Nýju holurnar hjálpa okkur að mæta þeirri þörf og auka öryggi hitaveitunnar þegar notkunin er mest.

 

Fleira áhugavert: