Vatnstankar Perlunnar – Hitaveita og bakrennslisvatn
Grein/Linkur: Er eitthvað vatn í tönkum Perlunnar?
Höfundur: Egill Jóhannesson
.
.
Águst 2009
Er eitthvað vatn í tönkum Perlunnar?
Perlan í Öskjuhlíðinni var vígð 21. júní árið 1991. Ingimundur Sveinsson arkitekt hannaði bygginguna. Tankar Perlunnar eru 6 talsins. Í þremur tankanna er 80°C heitt vatn sem bíður þess að vera sent út í dreifikerfi en í tveimur þeirra er bakrennslisvatn, um 30°C heitt. Í sjötta tankinum var sögusafn frá 2002-2014 en þar mátti sjá leikmyndir frá þekktum atburðum í Íslandssögunni. Sumarið 2017 opnaði sýningin Jöklar og íshellir í tankinum.
Tankarnir sjálfir eru 10 m á hæð og 23 m í þvermál. Hver tankur er þannig um 4.150 m3 en það má reikna með eftirfarandi formúlu fyrir rúmmáli sívalnings:
þar sem R er rúmmálið, h er hæðin, π≈3,14 og r er geislinn (e. radius). Geymslurými þeirra er hins vegar um það bil 4.000 m3.
Í 1 lítra eru 1000 cm3 og því 1000 lítrar í 1 m3. Hver tankur rúmar þá um 4 milljón lítra. Tankarnir 5, sem innihalda vatn, geyma því alls um 12 milljón lítra af 80°C heitu vatni og um 8 milljón lítra af 30°C heitu vatni.
Heimildir og mynd:
- Upplýsingar frá Orkuveitunni.
- Perlan.is – saga Perlunnar.
- Sögusafnið.