Gull, Gullleit – Jarðhitasvæði Reykanesi

Grein/Linkur: Gull­leitar­fyrir­tæki horfir til ís­lenskra jarð­hita­svæða eftir sýna­töku á Reykja­nesi

Höfundur: Kristinn Haukur Guðnason

Heimild:

.

.

Apríl 2023

Gull­leitar­fyrir­tæki horfir til ís­lenskra jarð­hita­svæða eftir sýna­töku á Reykja­nesi

Iceland Resources, fyrirtæki sem leitar að gulli og öðrum góðmálmum, greindi í dag frá niðurstöðum rannsókna á sýnum fengnum frá Reykjanesvirkjun. Forstjóri segir að langt sé í að möguleg vinnsla geti hafist.

26 sýni voru tekin innan úr borholum og úr setlaugum við Reykjanesvirkjun. Voru þau flutt út til greiningar í Kanada. Í sýnunum fundust 353 grömm af gulli og 5.960 grömm af silfri í hverju tonni. Auk þess sem sýnin innihéldu 12,65 prósent kopar og meira en 30 prósent sink.

„Það er þörf á frekari rannsóknum og við erum langt frá því að sjá hvort að málmarnir séu til í vinnanlegu magni. Þetta eru örfá sýni sem við fengum frá Reykjanesi. Ef vinnsla hefst getur það svo tekið allt að tuttugu ár,“ segir Þórdís Björk Sigurbjörnsdóttir, forstjóri Iceland Resources.

Samkvæmt Þórdísi sýna niðurstöðurnar að dýrmætir málmar séu til í talsverðu magni á jarðhitasvæðum Íslands. Það séu einnig miklar líkur á sambærilegu magni í öðrum jarðlögum landsins. Þessi uppgötvun staðfesti að viðskiptaáætlun Iceland Resources sé byggð á sterkum grunni.

Umdeild gullleit

Það var kanadíska námufyrirtækið St-Georges sem birti niðurstöðurnar en Iceland Resources er dótturfélag þess. Iceland Resources var áður í eigu feðganna Vilhjálms Þórs Vilhjálmssonar og Vilhjálms Kristins Eyjólfssonar sem eftir liggur slóð gjaldþrota á mismunandi kennitölum. Vilhjálmur Kristinn hefur einnig hlotið dóm fyrir skattalagabrot.

Landvernd og bæjarstjórn Mosfellsbæjar lögðust gegn gullleit í Þormóðsdal.VILHELM GUNNARSSON

Árum saman stunduðu feðgarnir gullleit, einkum í Þormóðsdal í Mosfellssveit, Tröllaskaga og Vopnafirði og hlaut sú leit gagnrýni. En samkvæmt rannsóknarleyfi fyrir gulleit er landeigendum skylt að veita óhindraðan aðgang að því landi sem nýtingarleyfið nær til.

Voru landeigendur margir hverjir mótfallnir leitinni og að veita aðgang að sínu landi. Sögðu þeir að jarðrask yrði mikið fyrir lítinn ávinning og að gullvinnsla sé mjög óumhverfisvæn. Meðal annars sé notuð blásýra til að „þvo“ gullið. Einnig hlutu áformin gagnrýni frá Landvernd og sveitarstjórn Mosfellsbæjar sem lagðist gegn gullleit í Þormóðsdal.

Nýjar vinnsluaðferðir séu umhverfisvænni

Samkvæmt Þórdísi fóru feðgarnir Vilhjálmur eldri og yngri út úr fyrirtækinu fyrir tveimur árum síðan. Hún stýrir fyrirtækinu sem sé alfarið í eigu St-Georges sem er með höfuðstöðvar í borginni Montreal. St-Georges titlar sig sem umhverfisvænt námuvinnslufyrirtæki, „eco-mining.“

Þórdís segir feðgana horfna úr fyrirtækinu og vinnsluaðferðirnar orðnar umhverfisvænni.

„Nýjar aðferðir við vinnslu málma eru mun umhverfisvænni en eldri aðferðir,“ segir Þórdís og nefnir að lagaumhverfið skipti líka máli. „Í Svíþjóð er lagaumhverfið mjög ákjósanlegt og hugað er að öllum þáttum, þar á meðal landvernd sem Iceland Resources er mjög umhugað um,“ segir hún.

Skoða Ísland í heild

Iceland Resources er enn þá með gilt rannsóknarleyfi fyrir leit á gulli og öðrum málmum í Þormóðsdal. Var það endurnýjað nú síðast í marsmánuði en upprunalega var það fengið af fyrirtækinu Melmi sem gekk inn í Iceland Resources.

Fyrirtækið hefur einnig gilt rannsóknarleyfi í Vopnafirði og Héraðsflóa en ósk um áframhaldandi leyfi á Tröllaskaga hefur verið dregið til baka.

„Við erum að skoða Ísland í heild sinni. Málmar í jörðu eru auðlind sem vert er að kanna, sérstaklega í árferði eins og nú er,“ segir Þórdís.

Fleira áhugavert: