Vindmyllur Færeyjum – Stærsti orkugjafinn
Grein/Linkur: Vindmyllur orðnar helsti raforkugjafi Færeyinga
Höfundur:
.
.
Vindmyllur orðnar helsti raforkugjafi Færeyinga
Fjallað var um málið í fréttum Stöðvar 2 en færeyskt samfélag er sennilega það sem einna mest líkist því íslenska. Þó er einn stór munur á; Færeyingar eru ekki jafn ríkir af orkulindum og Íslendingar og hafa þeir þurft að framleiða stóran hluta raforku sinnar með olíu.
En rétt eins og á íslenskum fjöllum, þá getur verið vindasamt á þeim færeysku og því hafa Færeyingar ákveðið að veðja á vindorkuna í vegferð sinni að grænum orkuskiptum.
Tölurnar tala sínu máli um árangurinn. Í fyrra voru 62 prósent raforku Færeyinga framleidd með dísilolíu, 24 prósent með vatnsorku, 13 prósent með vindorku og um eitt prósent með lífdísil og sólarorku.
Nýjustu tölur núna einn daginn í desember sýndu að dísilolían var fallin niður í 28 prósent, vatnsorkan var 25 prósent og vindorkan komin upp í 45 prósent, en tölur milli daga sveiflast þó mjög eftir því hvernig vindurinn blæs.
Vindorkulundir eru núna á fjórum stöðum í Færeyjum en mestu munar um þann nýjasta, sem er á fjöllunum ofan Þórshafnar, á Gellingarkletti. Þar voru reistar sex vindmyllur, þær langstærstu í Færeyjum. Hver þeirra er 91 metra há og með þremur 57 metra löngum blöðum, sem mynda 117 metra hring að þvermáli.
Og það fylgdu því áskoranir að koma þessum risastóru ferlíkjum upp á fjallið, þannig þurfti vörubílahlöss til að víkka beygjur og styrkja vegkanta.
Með blöðunum uppkomnum ná vindmyllurnar 150 metra hæð en þær voru formlega teknar í notkun þann 2. desember. Uppsett afl þeirra er samanlagt um 25 megavött og áætlað að þær framleiði um eitthundrað gígavattstundir á ári. Með þeim eykst sjálfbær raforkuframleiðsla Færeyinga um fjórðung.
Athugasemd: Í upphaflegri frétt sagði að blöðin væru 117 metra löng. Sú tala á við þvermál hringsins sem blöðin mynda uppkomin.
Hér má sjá frétt Stöðvar 2:
Árið 2013 rituðu íslenskir og færeyskir ráðherrar undir viljayfirlýsingu um að efla samstarf frændþjóðanna á sviði orkumála þar sem meðal annars átti að kanna kosti þess að leggja raforkusæstreng milli landanna, eins og fram kom í þessari frétt: