Vandamál með vatnið – Hér má sjá lausnir
Grein/Linkur: Vandamál með heita vatnið
Höfundur: Orkuveita Reykjavíkur
.
.
Húsið er vatnslaust!
Líkleg skýring:
- Veitustarfsmenn eru að vinna í götunni. Þig vantar upplýsingar. Hringdu í Þjónustuverið – 516 6000.
- Einhver hefur lokað inntaki vegna framkvæmda innanhús, tala við nágrannana
- Möguleg skýring að vetri til gæti verið að frosið sé í heimæð eða inntaki, hafa samband við starfsmenn heimlagna á afgreiðslutíma.
- Heimæðin er farin sundur. Hafa samband sem fyrst við bilanavakt – 516 6200
Þrýstingur er lágur
Líkleg skýring:
- Heitt og kalt vatn í krönum: Sía á inntaki orðin stífluð. Hafa samband við bilanavakt..
- Heitt vatn á ofnum: Þrýstijafnari eða stjórnbúnaður húseiganda getur bilað – hafa samband við pípulagningarmann.
Óhreinindi, brúnleitt vatn
Líkleg skýring:
- Kalt vatn í krönum: Lagnir í húskerfinu geta verið farnar að tærast. Hafa samband við pípulagningarmann..
- Óhreinindi úr dreifikerfinu eftir viðgerð. Hafa samband við bilanavakt..
Suð í lögnum
Líkleg skýring:
- Heita vatnið: Sírennsli einhversstaðar í húskerfinu. Hafa samband við pípulagningarmann..
- Heitt og kalt vatn: Mögulegur leki á heimæð. Hafa samband við bilanavakt…
- Kalt vatn: Athuga WC-kassa – hafa samband við pípulagningarmann
- Ofnarnir: Suðar í ofnunum. Ofninn allur heitur – hafa samband við pípulagningarmann
Högg og smellir í lögnum
Líkleg skýring:
- Heitt og kalt vatn: Bilun í lögnum eða stjórnbúnaði húseiganda – hafa samband við pípulagningarmann..
- Heitt og kalt vatn: Ef smellir eru við inntaksgrind – hafa samband við bilanavakt…
Heitt vatn í köldum krönum og öfug
Líkleg skýring:
- Millirennsli í húskerfinu (hitastýrð blöndunartæki geta bilað og þar með kemst heita vatnið inn í kaldavatnslögnina og eða öfugt eða tengt hefur verið milli krana t.d. í þvottahúsi eða bílskúr). Hafa samband við pípulagningarmann..
- Millirennsli gæti átt sér stað í nærliggjandi húsum. – Ef hægt er biðja nágranna að athuga hjá sér, annars hafa samband við bilanavakt..
- Kalda vatnið volgt eða heitt en þó ekki hitaveituvatn (hægt að sjá ef kalda vatnið kólnar við rennsli í smá tíma) – Bilun á heimæð, heitt vatn lekur út og hitar kaldavatnsheimæð. Hafa samband við bilanavak…
- Kalda vatnið volgt eða heitt en þó ekki hitaveituvatn (hægt að sjá ef kalda vatnið kólnar við rennsli í smá tíma) – Léleg einangrun á heitum og köldum lögnum sem liggja í sama stokk. Hafa samband við pípulagningarmann..
Vont bragð af vatninu
Líkleg skýring:
- Kalt vatn: Í nýjum lögnum eða nýviðgerðum getur smitast snittolía og mak.
- Ráð: Skola vel út – lagast með tímanum – ef ekki hafa samband við bilanavakt..
- Heitt vatn í köldum lögnum, sjá hér fyrir ofan millirennsli úr dreifikerfinu.