Neysluvatn – Reglugerð 536/2001

Heimild:

.

.

Reglugerð um neysluvatn 536/2001

I. KAFLI
Gildissvið, markmið og skilgreiningar.
1. gr.
Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um neysluvatn þ.m.t. átappað vatn sem sérreglur gilda ekki um.

Ákvæði reglugerðarinnar gilda ekki um vatn úr náttúrulegum ölkeldum með köldu, kolsýru- og steinefnaríku vatni og um vatn sem notað er til lækninga og er viðurkennt sem slíkt. Reglugerð þessi gildir ekki um hitaveituvatn.

2. gr.
Markmið.

Markmið þessarar reglugerðar er að vernda heilsu manna með því að tryggja að neysluvatn sé heilnæmt og hreint.

3. gr.
Skilgreiningar.

Í reglugerð þessari er:
1. Brunnsvæði sá hluti vatnsverndarsvæðis sem er í næsta nágrenni vatnsbólsins.

2. Dreifikerfi lagnakerfi sem dreifir vatninu til notenda að vatnsinntaki húss.

3. Grunnvatn vatn í gegnmettuðum jarðlögum undir yfirborði jarðar.

4. Lindarvatn vatn sem berst sjálfrennandi upp á yfirborð jarðar.

5. Matvælafyrirtæki hvert það fyrirtæki og hver sá aðili sem annast framleiðslu og dreifingu matvæla.

6. Neysluvatn vatn í upphaflegu ástandi eða eftir meðhöndlun, án tillits til uppruna þess og hvort sem það kemur úr dreifikerfi, tönkum, flöskum eða öðrum ílátum og ætlað er til neyslu, eða matargerðar. Einnig allt vatn sem notað er í matvælafyrirtækjum, nema unnt sé að sýna fram á að gæði þess vatns sem notað er hafi ekki áhrif á heilnæmi framleiðslunnar.

7. Neysluvatnskerfi húss lagnir og tilheyrandi búnaður milli vatnsinntaks húss og krana.

8. Vatnsból náttúruleg uppspretta eða mannvirki, þar sem vatn er tekið.

9. Vatnsveita fyrirtæki og mannvirki þess sem veitir vatni frá vatnsbóli til vatnsinntaksloka notenda.

10. Vatnsverndun ákvörðun um varðveislu vatnsgæða og viðhald þeirra svo og aðgerðir sem hindra spillingu vatns.

11. Vatnsverndarsvæði afmarkað svæði á vatnasviði vatnsbóla þar sem vatnsvernd hefur verið komið á.

12. Yfirborðsvatn vatn af yfirborði jarðar, sem nota má til neyslu ef það uppfyllir ákveðnar gæðakröfur.

II. KAFLI
Leyfisveitingar og kröfur.
4. gr.
Starfsleyfi.

Afla skal starfsleyfis heilbrigðisnefndar áður en eftirlitsskyld vatnsból eða vatnsveitur, sbr. 12. gr., og tilheyrandi búnaður er tekinn í notkun og við eigendaskipti, samanber ákvæði reglugerðar um matvælaeftirlit og hollustuhætti við framleiðslu og dreifingu matvæla. Skal það gert að undangenginni ákvörðun um vatnsvernd í samræmi við reglugerð um varnir gegn mengun vatns og rannsókn á gæðum vatnsins í samræmi við ákvæði 13. greinar þessarar reglugerðar. Kostnaður við rannsóknir greiðist af þeim sem sækir um starfsleyfi. Samráð skal haft við heilbrigðisnefnd um breytingar á eldri vatnsbólum eða vatnsveitum, eða ef breytingar verða á starfsemi þeirra, sem gætu haft áhrif á gæði neysluvatnsins.

Leyfi heilbrigðisnefndar þarf fyrir íblöndun efna sem ætluð eru til meðhöndlunar á neysluvatni. Einnig þarf leyfi heilbrigðisnefndar fyrir aðferðir sem notaðar eru við meðhöndlun á neysluvatni.

5. gr.
Heilbrigði starfsfólks.

Enginn sem ætla má að haldinn sé sjúkdómi, sem borist getur með vatni, má gegna störfum við vatnsveitu ef það er talið geta valdið sýkingarhættu. Ef ástæða er til að ætla að um slíka sýkingarhættu geti verið að ræða skal viðkomandi starfsmaður gangast undir læknisrannsókn á kostnað vatnsveitunnar.

6. gr.
Kröfur til neysluvatns.

Vatnsveitur og aðrir sem dreifa neysluvatni skulu sjá til þess að neysluvatn uppfylli kröfur í viðauka I við reglugerð þessa. Neysluvatn skal vera laust við örverur, sníkjudýr og efni í því magni sem getur haft áhrif á heilsu manna. Fyrir þá efnisþætti, sem ekki er fjallað um í viðauka I, skal stuðst við leiðbeiningar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) um gæði neysluvatns.

Neysluvatn skal jafnframt uppfylla ákvæði reglugerðar um matvælaeftirlit og hollustuhætti við framleiðslu og dreifingu matvæla og annarra sértækari reglna sem til þess ná.

Þegar nýta á yfirborðsvatn til neyslu skal það uppfylla þær kröfur sem gerðar eru í reglugerð þessari og leiðbeiningum Hollustuverndar ríkisins um gæði yfirborðsvatns.

Átappað lindarvatn skal uppfylla þau skilyrði um örverufræðilega þætti, merkingar umbúða og búnað sem notaður er, sem tilgreind eru í reglugerð um ölkelduvatn.

7. gr.
Neysluvatn til átöppunar.

Neysluvatn, sem ætlað er til sölu í neytendaumbúðum, skal leitt í leiðslu frá vatnsbóli til átöppunarhúsnæðis eða tekið til átöppunar úr veitukerfi. Ef átappað vatn er merkt sem lindarvatn, skal það leitt í sérleiðslu frá uppsprettustað til átöppunarhúsnæðis.

8. gr.
Undanþágur.

Hollustuvernd ríkisins er heimilt að veita undanþágu frá hámarksgildum að því tilskildu að heilsu manna stafi ekki hætta af og að því tilskildu að ekki sé hægt með neinu öðru eðlilegu móti að dreifa neysluvatni á viðkomandi svæði. Slíkri undanþágu skulu fylgja eftirfarandi upplýsingar um:
a) ástæður fyrir undanþágunni;
b) viðkomandi rannsóknarþætti, fyrri niðurstöður úr eftirliti og leyfilegt hámarksgildi;
c) landsvæði, vatnsmagn, íbúa og matvælafyrirtæki sem verða fyrir áhrifum;
d) eftirlitsáætlun;
e) samantekt úr áætlun um nauðsynlegar aðgerðir til úrbóta;
f) gildistíma undanþágunnar.

Undanþága skal gilda í eins skamman tíma og unnt er og aldrei lengur en í þrjú ár.

Áður en undanþága er veitt skal Hollustuvernd ríkisins auglýsa fyrirhugaða undanþágu með tryggilegum hætti þar sem íbúum viðkomandi svæðis er gefinn kostur á að koma á framfæri athugasemdum við stofnunina innan tilskilins frests.

Hollustuvernd ríkisins skal veita íbúum viðkomandi landsvæðis tafarlaust upplýsingar um veitta undanþágu og skilyrði fyrir henni og ráðgjöf.

Telji Hollustuvernd ríkisins að frávik frá hámarksgildi sé óverulegt og hægt sé að ráða bót á vandanum innan 30 daga þarf ekki að beita ákvæðum liða a-f. Í slíkum tilvikum skal heilbrigðisnefnd setja leyfilegt hámarksgildi og tilgreina frest til úrbóta. Ekki er heimilt að beita undanþágu samkvæmt þessari grein ef frávik frá hámarksgildi hefur verið viðvarandi hjá sömu vatnsveitu í meira en 30 daga á undanfarandi 12 mánuðum.

Grein þessi gildir ekki um átappað vatn.

III. KAFLI
Vatnsvernd.
9. gr.
Varnir gegn mengun vatnsbóla.

Umhverfis hvert vatnsból skal heilbrigðisnefnd ákvarða vatnsverndarsvæði sem skiptist í brunnsvæði, grannsvæði og fjarsvæði, sbr. reglugerð um varnir gegn mengun vatns. Brunnsvæði skal vera algjörlega friðað fyrir óviðkomandi umferð og framkvæmdum öðrum en þeim sem nauðsynlegar eru vegna vatnsveitunnar. Heilbrigðisnefnd skal, þar sem þörf krefur, krefjast þess að svæðið skuli girt gripa- og mannheldri girðingu, sem sé minnst 5 metra frá vatnsbóli.

Vatnsveitur skulu gera ráðstafanir til að koma í veg fyrir að vatnsból spillist. Sama gildir um aðra staði s.s. ár eða læki þar sem vatn er tekið til neyslu. Skylt er að tilkynna heilbrigðisnefnd tafarlaust ef vitað er um mengun á vatni í vatnsbólum eða dreifikerfi.

Um varnir gegn mengun vatnsbóla gildir að öðru leyti ákvæði reglugerðar um varnir gegn mengun vatns.

10. gr.
Efnisval og viðhald.

Leiðslur, dælur, geymar og annað sem notað er við vatnsveitu skal þannig gert og viðhaldið að neysluvatn spillist ekki. Eftirlitsaðila er heimilt að banna notkun slíks búnaðar ef ætla má að notkun hans geti valdið heilsutjóni.

11. gr.
Vernd ónýttra vatnsbóla.

Heilbrigðisnefnd og vatnsveitum er heimilt að gera tillögur til viðkomandi sveitarstjórnar að reglum til verndar ónýttum vatnsbólum.

Slíkar reglur skal setja sem heilbrigðissamþykktir, sbr. ákvæði 25. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir.

IV. KAFLI
Eftirlit og rannsóknir.
12. gr.
Eftirlit.

Heilbrigðisnefndir, undir yfirumsjón Hollustuverndar ríkisins, fara með eftirlit með ákvæðum þessarar reglugerðar, sbr. reglugerð um matvælaeftirlit og hollustuhætti við framleiðslu og dreifingu matvæla.

Heilbrigðisnefndum er heimilt með sérstökum samningum að fela tiltekna þætti eftirlitsins lögbundnum eftirlitsaðilum með matvælum og faggiltum skoðunaraðilum í samræmi við 24. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir. Ábyrgð á eftirlitinu og framkvæmd þvingunarúrræða hvílir eftir sem áður á viðkomandi heilbrigðisnefnd.

Heilbrigðisnefndir hafa ekki reglubundið eftirlit eða framkvæma heildarúttekt hjá vatnsveitum sem þjóna færri en 50 manns eða 20 heimilum/sumarbústöðum, nema þær þjóni matvælafyrirtækjum. Þá skal hafa reglubundið eftirlit með þeim í samræmi við töflur 4 og 5 í viðauka I a.m.k. einu sinni á ári. Einnig skal fara fram heildarúttekt a.m.k. einu sinni á ári ef vatnsnotkun fer yfir 100 m3 á dag miðað við ársmeðaltal.

Eftirlit skal haft með ástandi neysluvatns, þ.m.t. vatnsbólum og brunnsvæði þeirra, vatnsveitum, hreinsi- og dælustöðvum, dreifikerfum og öðru sem áhrif kann að hafa á neysluvatn. Eftirlit með yfirborðsvatni sem nota á í framleiðslu á neysluvatni skal vera í samræmi við leiðbeiningar Hollustuverndar ríkisins um gæði yfirborðsvatns, mæliaðferðir, tíðni sýnatöku og greiningar á yfirborðsvatni. Eftirlit skal felast í:

a) reglubundnu eftirliti með rannsóknaþáttum sem tilgreindir eru í töflu 4 í viðauka I og samkvæmt lágmarkstíðni sem tilgreind er í töflu 6 í viðauka I eða töflu 6 ef um átappað vatn er að ræða. Hollustuvernd ríkisins getur heimilað allt að 50% frávik frá lágmarkstíðni greininga sem tilgreind eru í töflu 6 fyrir mismunandi rannsóknaþætti í töflu 4 ef:
1. mæligildi úr sýnum sem tekin eru a.m.k. í 2 ár í röð eru stöðug og verulega lægri en hámarksgildin og

2. ekkert hefur komið í ljós sem bendir til að spilli gæðum neysluvatnsins
og

b) heildarúttekt á rannsóknaþáttum sem tilgreindir eru í töflum 1, 2, 3 í viðauka I og samkvæmt lágmarkstíðni sem tilgreind er í töflum 6 og 7 í viðauka I nema vatnsveita geti sýnt fram á með niðurstöðum mælinga yfir a.m.k. þriggja ára tímabil eða með öðrum gögnum að ólíklegt sé að tiltekinn rannsóknaþáttur mælist yfir hámarksgildi.

Eftirlitsaðili getur gert kröfur um allar ráðstafanir, sem nauðsynlegar eru til að tryggja að neysluvatn uppfylli skilyrði sem tilgreind eru í viðauka I.

13. gr.
Sýnataka.

Taka skal sýni á þann hátt að þau endurspegli ástand vatns á mismunandi árstímum og skal heilbrigðisnefnd ákveða sýnatökustaði í samráði við vatnsveitur.

Um sýnatöku og meðferð vatnssýna skal fara eftir leiðbeiningum Hollustuverndar ríkisins um töku vatnssýna. Tíðni sýnatöku og greiningaraðferðir fer eftir ákvæðum viðauka I og II og tíðni reglubundins eftirlits og heildarúttektar í matvælafyrirtækjum skal ákvarðast af vatnsnotkun í samræmi við leiðbeiningar Hollustuverndar ríkisins um eftirlit með neysluvatni í matvælafyrirtækjum. Heilbrigðisnefnd skal meta þörf á aukinni sýnatöku ef vatn á litlum vatnsveitusvæðum er notað á sjúkrastofnunum, í skólum eða annarri starfsemi svo og ef vatnsgæði eru óstöðug.

Ef aðrar greiningaraðferðir eru notaðar skal leita samþykkis Hollustuverndar ríkisins. Rannsóknir sýna skulu gerðar á faggiltum rannsóknarstofum með faggiltum rannsóknaraðferðum.

Til þess að meta hvort neysluvatn stenst kröfur samkvæmt viðauka I skulu sýni til rannsókna tekin á eftirfarandi hátt:

a) vegna vatns úr dreifikerfi skal taka sýni úr vatnsbólum og þar úr dreifikerfinu sem það er tiltækt notendum;
b) vegna átappaðs vatns til dreifingar skal taka sýni þar sem vatnið fer í flöskur eða önnur ílát;
c) vegna vatns sem notað er í matvælafyrirtæki skal taka sýni þar sem vatnið er tekið til notkunar inn í húsið;
d) vegna vatns úr tankbílum, tankvögnum eða tankskipum skal taka sýni þar sem vatnið er tekið úr tanknum.

Taka skal sýni og framkvæma mælingar ef rökstuddur grunur er um mengun neysluvatns vegna efna eða örvera sem ekki koma fram í viðauka I en geta valdið tjóni á heilsu fólks. Áður en nýtt vatnsból er tekið í notkun skal fara fram heildarúttekt samkvæmt viðauka I.

Í sérstökum tilvikum og þegar alvarlegt ástand getur skapast er Hollustuvernd ríkisins heimilt án fyrirvara að setja tímabundið strangari ákvæði en þau sem birt eru í viðaukum við reglugerð þessa og leiðbeiningum um yfirborðsvatn.

14. gr.
Viðbrögð við menguðu neysluvatni.

Ef niðurstöður greininga vegna sýnatöku eftirlitsaðila, vegna heildarúttektar eða vegna reglubundins eftirlits, sbr. viðauka I, fara yfir hámarksgildi skal heilbrigðisnefnd þegar rannsaka þau tilvik í því skyni að greina orsök þeirra og meta hvort líkur eru á að heilsu manna stafi hætta af.

Ef niðurstöður greininga vegna sýnatöku dreifingaraðila fara yfir hámarksgildi skal hann tilkynna það til heilbrigðisnefndar án tafar.

Rannsóknaþættir í viðauka I eru flokkaðir í flokka A, B og C eftir því til hvaða aðgerða ber að grípa ef gildi mælist hærra en hámarksgildi viðkomandi þátta. Mælist gildi yfir hámarksgildi fyrir framangreinda flokka skal gripið til eftirfarandi aðgerða:

Flokkur A:

Gripið skal til nauðsynlegra aðgerða til úrbóta til að endurheimta vatnsgæðin. Heilbrigðisnefnd skal í samráði við Hollustuvernd ríkisins banna dreifingu eða notkun neysluvatnsins, nema eftir nauðsynlegar aðgerðir til verndar heilsu manna. Heilbrigðisnefnd skal tafarlaust veita neytendum upplýsingar og ráðgjöf.

Flokkur B

:

Gripið skal til nauðsynlegra aðgerða til úrbóta til að endurheimta vatnsgæðin. Skulu aðgerðir ráðast af því hve mikið greining er yfir hámarksgildi og þeirri hættu sem heilsu manna er búin. Taki heilbrigðisnefnd í samráði við Hollustuvernd ríkisins þá ákvörðun að banna dreifingu neysluvatnsins eða takmarka notkun skal það gert með hliðsjón af þeirri hættu sem það kann að skapa. Í slíkum tilvikum skulu neytendum tafarlaust veittar upplýsingar og nauðsynleg ráðgjöf.

Flokkur C:

Heilbrigðisnefnd skal í samráði við Hollustuvernd ríkisins meta hvort heilsu manna er hætta búin. Heilbrigðisnefnd ber að grípa til aðgerða til að endurheimta vatnsgæðin. Neytendum skal tilkynnt um aðgerðir nema um óverulegt frávik sé að ræða.

Heilbrigðisnefnd skal tilkynna viðkomandi héraðslækni eða sóttvarnalækni jafnskjótt og hún hefur orðið vör við hugsanlega smithættu, sbr. ákvæði 11. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997.

15. gr.
Ábyrgð húseigenda og aðgerðir.

Ef niðurstaða greiningar vatnssýnis skv. a-lið 13. gr., er yfir hámarksgildi og rekja má orsakir þess til neysluvatnskerfis húss er það á ábyrgð húseigenda að grípa til nauðsynlegra aðgerða.

Ef um er að ræða byggingar eða fyrirtæki sem veita vatni til almennings, s.s. í skólum, heilbrigðisstofnunum eða matvælafyrirtækjum, ber heilbrigðisnefnd að gera kröfu um úrbætur og leiðbeina húseigendum um mögulegar aðgerðir sem þeir geta gripið til eftir því sem við á.

Heilbrigðisnefnd skal sjá til þess að hlutaðeigandi neytendur fái upplýsingar um ástand vatnsins og aðgerðir sem þeir geta gripið til.

16. gr.
Skýrslugerð.

Heilbrigðisnefndir skulu árlega skila skýrslu til Hollustuverndar ríkisins um niðurstöður úr sýnatökum á neysluvatni. Hollustuvernd ríkisins skal taka saman og birta skýrslu árlega um ástand neysluvatns í þeim tilgangi að koma upplýsingum á framfæri við neytendur.

V. KAFLI
Viðurlög og gildistaka.
17. gr.

Til að knýja á um framkvæmd ráðstafana samkvæmt reglugerð þessari getur heilbrigðisnefnd beitt þvingunarúrræðum samkvæmt lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og lögum nr. 93/1995 um matvæli.

18. gr.
Viðurlög.

Með brot gegn reglugerð þessari skal farið samkvæmt lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og lögum nr. 93/1995 um matvæli, nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum.

19. gr.
Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með stoð í lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og lögum nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum. Einnig var höfð hliðsjón af ákvæðum samningsins um Evrópskt efnahagssvæði, sem vísað er til í XX. viðauka II. kafla (tilskipun 98/83/EB). Einnig með þeim breytingum og viðbótum sem leiða af XX. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Þá er reglugerðin sett að höfðu samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga, sbr. ákvæði 3. mgr. 9. gr. laga nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir.

Reglugerðin öðlast gildi við birtingu. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 319/1995 um neysluvatn, með síðari breytingum. Reglugerðin skal endurskoðuð eigi síðar en í júní 2006.

Ákvæði til bráðabirgða.
1. Gæði neysluvatns skulu uppfylla ákvæði þessarar reglugerðar fyrir 5. desember 2003.

2. Fyrsta skýrslan sem Hollustuvernd ríkisins skal taka saman samkvæmt 16. gr. skal birta árið 2004.

Umhverfisráðuneytinu, 28. júní 2001.
F. h. r.
Ingimar Sigurðsson.
Sigurbjörg Sæmundsdóttir.
VIÐAUKI I
Rannsóknaþættir, hámarksgildi og fyrirkomulag greininga.

Með reglubundnu eftirliti skal reglubundið afla upplýsinga um ástand neysluvatns með tilliti til efna-, eðlis- og örverufræðilegra þátta til þess að meta hvort neysluvatnið stenst þau hámarksgildi sem sett eru. Einnig skal afla upplýsinga um hversu skilvirk meðhöndlun drykkjarvatns er (einkum sótthreinsun) þar sem henni er beitt.
Heildarúttekt felst í að kanna hvort neysluvatn stenst öll hámarksgildi skv. reglugerð þessari.
Rannsóknaþættir eru flokkaðir í A, B og C flokka eftir því til hvaða aðgerða ber að grípa ef gildi mælast hærri en hámarksgildi viðkomandi þátta, sbr. ákvæði 14. gr.

Tafla 1. Heildarúttekt – Örverufræðilegir þættir.

RANNSÓKNAÞÁTTUR
HÁMARKSGILDI
FLOKKUN
ATHUGASEMDIR
Heildargerlafjöldi við 22°C
100/ml
C
Kólígerlar
0/100 ml
C
Escherichia coli (E. Coli)
0/100 ml
A
Saurkokkar
0/100 ml
A
Clostridium perfringens (þ.m.t. gró)
0/100 ml
C
Aðeins fyrir yfirborðsvatns eða ef hætta er á mengun vatnsbóls frá yfirborðsvatni. Ef gildi mælast yfir hámarksgildi skal mæla sjúkdómsvaldandi örverur, s.s. Cryptosporidium

Eftirfarandi á við átappað vatn:

RANNSÓKNAÞÁTTUR
HÁMARKSGILDI
FLOKKUN
ATHUGASEMDIR
Heildargerlafjöldi 22°C
100/ml
A
Heildargerlafjöldi 37°C
20/ml
A
Kólígerlar
0/250 ml
A
Escherichia coli (E. Coli)
0/250 ml
A
Saurkokkar
0/250 ml
A
Pseudomonas aeruginosa
0/250 ml
A
Clostridium perfringens (þ.m.t. gró)
0/100 ml
A
Aðeins fyrir yfirborðsvatns eða ef hætta er á mengun vatnsbóls frá yfirborðsvatni. Ef gildi mælast yfir hámarksgildi skal mæla sjúkdómsvaldandi örverur, s.s. Cryptosporidium

Tafla 2. Heildarúttekt – Efna- og eðlisfræðilegir þættir.

RANNSÓKNAÞÁTTUR
HÁMARKSGILDI
FLOKKUR
ATHUGASEMDIR
1,2-díklóretan
3,0 μg/l
B
Akrýlamíð
0,10 μg/l
B
Hámarksgildið vísar til styrks einliðuleifa í vatninu, reiknað út frá forskrift fyrir hámarkslosun frá samsvarandi fjölliðu í snertingu við vatn
Ál
200 μg/l
C
Ammoníum
0,50 μg/l
C
Antímon
5,0 μg/l
B
Aromatísk fjölhringa kolvatnsefni (PAH)
0,10 μg/l
B
Hámarksgildið á við summu af styrk eftirfarandi efnasambanda:
benzo(b)flúoranten, benzo(k)flúoranten
benzo(ghi)perylen,indeno(1,2,3-cd)pyren
Arsen
10 μg/l
B
Bensen
1,0 μg/l
B
Benso(a)pyren
0,010 μg/l
B
Blý
10 μg/l
B
Gildið skal vera lýsandi fyrir neysluvatn
Bór
1,0 mg/l
B
Bragð
C
Fullnægjandi fyrir neytendur og engin óeðlileg breyting
Brómat
10 μg/l
B
Epiklórhýdrin
0,10 μg/l
B
Hámarksgildið vísar til styrks einliðuleifa í vatninu, reiknað út frá forskrift fyrir hámarkslosun frá samsvarandi fjölliðu í snertingu við vatn
Flúoríð
1,5 mg/l
B
Heildarmagn lífræns kolefnis (TOC)
Engin óeðlileg breyting
C
Þarf aðeins að mæla ef vatnsnotkun er meira en 10.000 m³/dag
Járn
200 μg/l
C
Kadmíum
5,0 μg/l
B
Klóríð
250 mg/l
C
Vatnið má ekki vera tærandi
Kopar
2,0 mg/l
B
Gildið skal vera lýsandi fyrir neysluvatn
Króm
50 μg/l
B
Kvikasilfur
1,0 μg/l
B
Leiðni
2500 μS cm-1 við 20°C
C
Vatnið má ekki vera tærandi
Litur
C
Fullnægjandi fyrir neytendur og engin óeðlileg breyting
Lykt
C
Fullnægjandi fyrir neytendur og engin óeðlileg breyting
Mangan
50 μg/l
C
Natríum
200 mg/l
C
Nikkel
20 μg/l
B
Gildið skal vera lýsandi fyrir neysluvatn
Nítrat
50 mg/l
B
Uppfylla þarf skilyrði um að [nítrat]/50 + [nítrít]/3 ≤ 1, þar sem hornklofarnir merkja styrkinn í mg/l fyrir nítrat (NO3) og nítrít (NO2) og að gildið fyrir nítrít fari ekki yfir 0,10 mg/l í vatni frá vatnsveitu
Nítrít
0,50 mg/l
B
Uppfylla þarf skilyrði um að [nítrat]/50 + [nítrít]/3 ≤ 1, þar sem hornklofarnir merkja styrkinn í mg/l fyrir nítrat (NO3) og nítrít (NO2) og að gildið fyrir nítrít fari ekki yfir 0,10 mg/l í vatni frá vatnsveitu
Oxunarhæfni
5,0 mg/l O2
C
Þarf ekki að mæla ef heildarmagn lífræns kolefnis (TOC) er mælt
Selen
10 μg/l
B
Súlfat
250 mg/l
C
Vatnið má ekki vera tærandi
Sýaníð
50 μg/l
B
Sýrustig
6,5 og 9,5 pH eining
C
Vatnið má ekki vera tærandi. Fyrir kolsýrulaust átappað vatn má lágmarksgildið fara niður í pH 4,5
Tetraklóreten og tríklóreten
10 μg/l
B
Summa styrks efnasambandanna
Tríhalómetan
100 μg/l
B
Summa styrks eftirfarandi efnasambanda: klóróform, brómóform, díbrómóklórmetan, brómódíklórmetan
Varnarefni
0,10 μg/l
B
Hámarksgildið á við hvert einstakt varnarefni(1). En hámarksgildi fyrir aldrín, díeldrín, heptaklór og heptaklórepoxíð er 0,030 μg/l fyrir hvert efni
Varnarefni – heildarmagn
0,50 μg/l
B
Merkir samtölu allra einstakra varnarefna sem finnast og eru magngreind við eftirlit
Vínilklóríð
0,50 μg/l
B
Hámarksgildið vísar til styrks einliðuleifa í vatninu, reiknað út frá forskrift fyrir hámarkslosun frá samsvarandi fjölliðu í snertingu við vatn
Grugg
Fullnægjandi fyrir neytendur og engin óeðlileg breyting
C
Stefna skal að hámarksgildi ekki hærra en 1,0 NTU (nephelometric turbidity units) í vatni sem hefur verið yfirborðsmeðhöndlað
1. Varnarefni eru: lífrænt skordýraeitur, lífrænn illgresiseyðir, lífrænn sveppaeyðir, lífrænn þráðormaeyðir, lífrænn mauraeyðir, lífrænn þörungaeyðir, lífrænn nagdýraeyðir, lífrænn slímeyðir, skyldar vörur (svo sem vaxtarstýriefni) og umbrots-, niðurbrots- og hvarfefni þeirra. Aðeins þarf að mæla þau varnarefni sem líkur eru á að séu til staðar í vatninu á hverjum stað.

Tafla 3. Geislavirkni.

GEISLAVIRKNI HÁMARKSGILDI ATHUGASEMDIR
Þrívetni 100 Bq/l Mælingatíðni verður ákvörðuð síðar.
Heildarbendiskammtur 0,10 mSv/ár Mælingatíðni, mæliaðferðir, og mikilvægustu mælingastaðir verða ákvarðaðir síðar nema fyrir þrívetni, kalíum-40, radon og sindurafurðir radons.

Tafla 4. Reglubundið eftirlit – Örverufræðilegir þættir.

RANNSÓKNAÞÁTTUR
HÁMARKSGILDI
FLOKKUN
ATHUGASEMDIR
Heildargerlafjöldi við 22°C
Engin óeðlileg breyting
C
Kólígerlar
0/100 ml
C
Escherichia coli (E. Coli)
0/100 ml
A
Clostridium perfringens (þ.m.t. gró)
0/100 ml
C
Aðeins fyrir yfirborðsvatns eða ef hætta er á mengun vatnsbóls frá yfirborðsvatni. Ef gildi mælast yfir hámarksgildi skal mæla sjúkdómsvaldandi örverur, s.s. Cryptosporidium

Eftirfarandi á við átappað vatn:

RANNSÓKNAÞÁTTUR
HÁMARKSGILDI
FLOKKUN
ATHUGASEMDIR
Heildargerlafjöldi 22°C
100/ ml
A
Heildargerlafjöldi 37°C
20/ml
A
Kólígerlar
0/250 ml
A
Escherichia coli (E. Coli)
0/250 ml
A
Pseudomonas aeruginosa
0/250 ml
A
Clostridium perfringens (þ.m.t. gró)
0/100 ml
A
Aðeins fyrir yfirborðsvatns eða ef hætta er á mengun vatnsbóls frá yfirborðsvatni. Ef gildi mælast yfir hámarksgildi skal mæla sjúkdómsvaldandi örverur, s.s. Cryptosporidium

Tafla 5. Reglubundið eftirlit – Efna- og eðlisfræðilegir þættir.

RANNSÓKNAÞÁTTUR
HÁMARKSGILDI
FLOKKUN
ATHUGASEMDIR
Ál
200 mg/l
C
Á einungis við þegar ál er notað við að mynda kekki
Ammoníum
0,50 mg/l
C
Járn
200 mg/l
C
Á einungis við þegar járn er notað við
meðhöndlun á vatni
Nítrít
0,50 mg/l
B
Á einungis við ef klóramín er notað
til sótthreinsunar
Sýrustig (pH)
6,5 og 9,5
C
Kolsýrulaust átappað vatn má hafa pH niður í 4.5
Litur
Fullnægjandi fyrir neytendur og engin óeðlileg breyting
C
Leiðni
2500 μS cm-1 við 20°C
C
Vatnið skal ekki vera tærandi
Lykt
Fullnægjandi fyrir neytendur og engin óeðlileg breyting
C
Bragð
Fullnægjandi fyrir neytendur og engin óeðlileg breyting
C
Grugg
Fullnægjandi fyrir neytendur og engin óeðlileg breyting
C

Tafla 6. Lágmarkstíðni greininga

.

ÍBÚAFJÖLDI Á VEITUSVÆÐI
(1)
REGLUBUNDIÐ EFTIRLIT
FJÖLDI SÝNA Á ÁRI
(2), (3) OG (4)
HEILDARÚTTEKT
FJÖLDI SÝNA Á ÁRI
(2), (4) OG (5)
Færri en 150
1/2 (6)
Ákvörðun heilbrigðisnefndar í samráði við Hollustuvernd ríkisins
151 – 500
1
Ákvörðun heilbrigðisnefndar í samráði við Hollustuvernd ríkisins
501 – 1 000
4
1
1 001 – 5 000
4
1
5 001 – 10 000
7
1
10 001 – 15 000
10
1
15 001 – 20 000
13
2
20 001 – 25 000
16
2
25 001 – 30 000
19
3
30 001 – 35 000
22
3
35 001 – 40 000
25
3
40 001 – 45 000
28
3
45 001 – 50 000
31
3
>50 000
34
+ 3 fyrir hverja viðbótar 5000 íbúa á veitusvæði
3
+ 1 fyrir hverja viðbótar 50.000 íbúa á veitusvæði
1. Veitusvæði er landfræðilega afmarkað svæði þar sem neysluvatn kemur úr einu eða fleiri vatnsbólum og þar sem líta má svo á að gæði vatnsins séu hér um bil einsleit.
2. Ef um er að ræða ósamfellda skammtímavatnsveitu úr tankbílum, tankvögnum eða tankskipum skal ákveða sýnafjölda/tíðni sérstaklega.
3. Hollustuvernd ríkisins getur heimilað allt að 50% frávik frá lágmarkstíðni greininga sem tilgreind eru í töflu 5 fyrir mismunandi rannsóknaþætti í töflu 4 ef:

a. mæligildi úr sýnum sem tekin eru a.m.k. í 2 ár í röð eru stöðug og verulega lægri en hámarksgildin;
b. ekkert hefur komið í ljós sem líkur benda til að spilli gæðum neysluvatnsins.

4. Sýnatöku skal eftir því sem unnt er dreifa jafnt með tilliti til tíma og staðsetningar.
5. Mæla þarf alla þætti heildarúttektar samkvæmt töflu 1, 2 og 3 nema að vatnsveita geti sýnt fram á með niðurstöðum mælinga eða á annan hátt að ólíklegt sé að tiltekinn rannsóknaþáttur mælist yfir hámarksgildi.
6. ½ þýðir annað hvert ár, 1/3 þriðja hvert ár, ¼ fjórða hvert ár.

Tafla 7. Lágmarkstíðni sýnatöku og greininga á neysluvatni sem dreift er á flöskum eða í öðrum ílátum.

Rúmmál neysluvatns sem er framleitt á dag til sölu í flöskum eða öðrum ílátum(1) m³
Reglubundið eftirlit
Fjöldi sýna á ári
Heildarúttekt
Fjöldi sýna á ári
< 10
1
1
> 10 ≤ 60
12
1
> 60
1 fyrir hverja byrjaða 5 m³/dag
1 fyrir hverja byrjaða 100 m³/dag

1. Rúmmál er reiknað sem meðaltal miðað við eitt almanaksár.

VIÐAUKI II
Greiningaraðferðir.

Fyrir þær rannsóknaraðferðir sem ekki eru faggiltar skulu rannsóknastofur sem rannsaka sýni hafa gæðaeftirlitskerfi sem er sannprófað af óháðum aðila sem viðurkenndur er af Hollustuvernd ríkisins í þessu skyni.

1. Fyrir eftirfarandi rannsóknaþætti skal aðeins nota tilgreindar greiningaraðferðir.
Eftirfarandi meginreglur um aðferðir fyrir örverufræðilega rannsóknaþætti eru annaðhvort gefnar upp sem tilvísun þegar CEN/ISO aðferð er tilgreind eða til leiðbeiningar uns frekari alþjóðlegar CEN/ISO aðferðir kunna að verða samþykktar. Heimilt er að nota aðrar aðferðir, að því tilskildu að unnt sé að sýna fram á að niðurstöðurnar sem fást, séu að minnsta kosti jafnáreiðanlegar og þær sem fást með tilgreindu aðferðunum.

Kólígerlar and Escherichia coli (E. coli) ISO 9308-1
Saurkokkar ISO 7899-2
Pseudomonas aeruginosa prEN ISO 12780
Heildarfjöldi gerla við 22°C prEN ISO 6222
Heildarfjöldi gerla við 37°C prEN ISO 6222

Clostridium perfringens

(gró meðtalin)
Himnusíun ásamt loftfirðri ræktun himnunnar á m-CP agar1) við 44 ± 1°C í 21 ± 3 klst. Taldir eru ógegnsæir gulir gerlaklasar sem verða bleikir eða rauðir eftir að ammonium hýdroxíð gufur hafa leikið um þá í 20-30 sekúndur.
1)
Samsetning m-CP agars er:
Grunnæti:

Tryptósi (Tryptose) 30 g
Gerkjarni (Yeast extract) 20 g
Súkrósi 5 g
L-systeín hýdróklóríð 1 g
MgSO4-7H2O 0,1 g
Brómókresól purpurarautt 40 mg
Agar 15 g
Vatn 1000 ml

Efni grunnætisins eru leyst upp, pH stillt á 7,6 og sett í gufusæfi við 121°C í 15 mínútur. Ætinu er leyft að kólna og síðan er sett í það:

D-sýklóserín 400 mg
Pólýmyxín-B súlfat 25 mg
Indoxýl–D-glúkósíð 60 mg

Sem skal leyst upp í 8 ml af sæfðu vatni áður en því er bætt í

Síuð sæfð 0,5% fenolftalin dífosfat lausn 20 ml
Síuð sæfð 4,5% FeCl3,6H2O 2 ml

2. Rannsóknaþættir sem gæðakröfur eru tilgreindar fyrir.

Gerðar eru þær kröfur til greiningaraðferða, sem notaðar eru til að mæla eftirfarandi rannsóknaþætti, að unnt sé að minnsta kosti að mæla styrk sem er jafnhár hámarksgildi með tilgreindri samkvæmni (trueness), nákvæmni (precision) og greiningarmörkum. Niðurstöðurnar skulu settar fram með a.m.k. sama fjölda aukastafa og hámarksgildið í viðauka I án tillits til næmi greiningaraðferðarinnar sem notuð er.
Gerðar eru þær kröfur til greiningaraðferðar, sem notuð er til að mæla styrk vetnisjóna, að unnt sé að minnsta kosti að mæla styrk sem er jafnhár hámarksgildi með samkvæmni upp á 0,2 pH einingar og nákvæmni upp á 0,2 pH einingar.

Tafla 8. Rannsóknaþættir sem gæðakröfur eru tilgreindar fyrir.

RANNSÓKNA-
ÞÆTTIR
SAMKVÆMNI SEM HLUTFALL AF MÆLIGILDI (1), (3)
NÁKVÆMNI SEM HLUTFALL AF MÆLIGILDI (2), (3)
GREININGAR-
MÖRK SEM HLUTFALL AF MÆLIGILDI (4)
1,2-díklóretan
25
25
10
Akrýlamíð
Ál(5)
10
10
10
Ammoníum
10
10
10
Antímon
25
25
25
Aromatísk fjölhringa kolvatnsefni
25
25
25
Arsen
10
10
10
Bensen
25
25
25
Bensó(a)pýren
25
25
25
Blý
10
10
10
Bór
10
10
10
Brómat
25
25
25
Epiklórhýdrin(5)
Flúoríð
10
10
10
Járn
10
10
10
Kadmíum
10
10
10
Klóríð
10
10
10
Kopar
10
10
10
Króm
10
10
10
Kvikasilfur
20
10
20
Leiðni
10
10
10
Mangan
10
10
10
Natríum
10
10
10
Nikkel
10
10
10
Nítrat
10
10
10
Nítrít
10
10
10
Oxunarhæfni
25
25
10
Selen
10
10
10
Súlfat
10
10
10
Sýaníð
10
10
10
Tetraklóreten
25
25
10
Tríhalómetan – Alls
25
25
10
Tríklóreten
25
25
10
Varnarefni
25
25
25
Vinyl klóríð
1. Samkvæmni er sú kerfisbundna skekkja sem er munur á meðaltali margra endurtekinna mælinga og raunverulegu mæligildi.
2. Nákvæmni er sú slembiskekkja sem er gefin upp sem staðalfrávik (innan lotu og milli lotna) í dreifingu niðurstaðna í kringum meðaltal. Viðunandi nákvæmni er tvisvar sinnum hlutfallslegt staðalfrávik.

3. Þessi hugtök eru nánar skilgreind í ISO 5725.
4. Greiningarmörk eru annaðhvort:

– þrisvar sinnum hlutfallslegt staðalfrávik innan lotu fyrir sýni með lágan styrk viðkomandi mæligildis
eða
– fimm sinnum hlutfallslegt staðalfrávik innan lotu fyrir núllsýni.
5. Sannprófað með vörulýsingu.
3. Mæligildi sem engar greiningaraðferðir hafa verið tilgreindar fyrir.
Litur
Lykt
Bragð
Heildarmagn lífræns kolefnis (TOC)
Grugg1)

1) Fyrir eftirlit með gruggi í meðhöndluðu yfirborðsvatni eru gerðar þær gæðakröfur að með greiningaraðferðinni, sem notuð er, sé að minnsta kosti unnt að mæla styrk sem er jafnhár hámarksgildi með tilgreindri samkvæmni upp á 25%, nákvæmni upp á 25% og greinimörkum upp á 25%.

Fleira áhugavert: