Sundarbraut – Starfshópur, framtíðarlega
.
Apríl 2020
Starfshópur geri tillögu að framtíðarlegu Sundabrautar
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur falið Vegagerðinni að leiða vinnu starfshóps til að endurmeta og skoða tvo fýsilega kosti um legu Sundabrautar og gera tillögu að framtíðarlausn sem fest yrði í skipulagi. Í hópnum munu sitja fulltrúar Reykjavíkurborgar, SSH og Faxaflóahafnar auk Vegagerðarinnar. Starfshópurinn á að skila niðurstöðum sínum fyrir 31. ágúst 2020. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu.
Í færslu Sigurðar Inga Jóhannssonar, samgönguráðherra, á Facebook kemur fram að í lok sumars fái hann tillögu að framtíðarlausn sem fest yrði í skipulagi. Ráðherra segir að gera má ráð fyrir því að 1600-2000 ársverk skapist vegna framkvæmdarinnar hjá verktökum og um 3-400 ársverk hjá öðrum í undirbúningi, hönnun, umsjón og eftirliti.
,,Hvað varðar vegstyttingu, miðað við frá miðbæ Reykjavíkur og upp á Kjalarnes, að farið sé um Sæbraut og Vesturlandsveg, mun leiðin styttast um allt að 9 km og margar dýrmætar mínútur ef umferðin er þung. Sundabrautin mun því létta mjög á umferð á Gullinbrú og í Ártúnsbrekku,“ segir ráðherra í færslu sinni.
Verkefnið felst í að endurmeta þá tvo kosti sem starfshópur um Sundabraut á vegum ríkisins og Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) taldi fýsilegasta í skýrslu sinni sem kynnt var í júlí í fyrra. Það eru jarðgöng yfir í Gufunes og lágbrú sem þverar hafnarsvæðið við Kleppsvík. Fyrri kosturinn er framkvæmanlegur án þess að hafa áhrif á starfsemi Sundahafnar . Fram kom í skýrslunni að reynist mögulegt að færa starfsemi Sundahafnar væri lágbrú ódýrasti kosturinn og sá sem hentaði flestum ferðamátum.
Í báðum tilvikum lagði starfshópurinn til að þessir valkostir yrðu endurmetnir og útfærðir til hlítar með tillit til breyttra forsenda um legu þessara samgöngutenginga. Leitað verði leiða til að lækka framkvæmdakostnað við göngin, endurskoða tengingar þeirra við hafnarsvæðið, og við Sæbraut og Gufunes til að hámarka þann fjölda sem myndi aka göngin í stað annarra leiða. Samhliða verði hugmyndir um lágbrú endurskoðaðar, mismunandi útfærslur á brú skoðaðar sem líklegt er að sátt náist um og hægt að hrinda í framkvæmd á viðunandi tíma.
Markmiðið að undirbúa ákvörðun
Markmið verkefnisins nú er að undirbúa ákvörðun um það hvaða leið verði farin við uppbyggingu Sundabrautar og eiga samráð við helstu hagsmunaaðila og fyrirtæki á svæðinu. Starfshópurinn á að skila niðurstöðum sínum fyrir lok ágústmánaðar og þá eiga liggja fyrir nauðsynlegar upplýsingar til þess að taka ákvörðun um legu Sundabrautar frá Sæbraut að Vesturlandsvegi í Kollafirði, sem fest yrði í skipulagi.
Verkefni hópsins verða einkum tvíþætt:
- Endurmeta hönnun og legu Sundabrautar og gera nýtt kostnaðarmat fyrir báða valkosti. Leggja skal fram ný frumdrög fyrir báðar framkvæmdir og taka mið af uppbyggingaráformum í samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins.
- Greina valkosti fyrir breytt skipulag Sundahafnar ef lágbrú yrði fyrir valinu. Vinna þarf mat á áhrifum á umferð, umhverfisþætt, nærumhverfi, atvinnustarfsemi og þróunarmöguleika Sundahafnar.