Stækkun Icelandair Hótel Vík
Desember 2017
„Við teygðum þetta og breyttum aðeins vegna eftirspurnar. Upprunalega áttu þetta að vera um 30 herbergi,“ segir Sigurður Elías Guðmundsson, oftast kallaður Elías, en hann er eigandi starfseminnar á Icelandair Hotel Vík. Fyrirhugað er að bæta við 48 herbergjum með nýrri viðbyggingu. Dagskráin, fréttablað Suðurlands greindi frá í gær.
Um er að ræða 20 lúxusherbergi, fjórar 55 fermetra svítur, fjölskylduherbergi á tveimur hæðum og minni herbergi. Á fyrstu hæð hússins verður spa með heitum pottum fyrir gesti. Á annarri hæð verða fundasalir og á þeirri þriðju svokallaður „panorama northern light bar“.
Í samtali við fréttastofu Vísis segir Elías að þetta sé lokahnykkurinn í byggingu hótelsins, en það opnaði dyr sínar í júní 2014. Herbergin eru fyrir 88 talsins en eftir viðbætur verða þau 136.
Bregðast við vexti ferðaþjónustunnar
Upprunalega átti bara að bæta við 30 herbergjum en ör vöxtur ferðaþjónustunnar gerði það að verkum að ákveðið var að fjölga þeim.
„Við erum að sjá enn eitt metárið í nýtingu hjá okkur. Við bregðumst bara við vexti ferðaþjónustunnar með viðbætum á þjónustu og umgjörð,“ segir Elías og ítrekar að stöðugt flæði ferðamanna í gegnum Vík aukist.
„Það er þannig að við erum með gríðarlegan straum austur til okkar. Yfir Reynisfjallið aka yfir 4.000 bílar á dag á sumrin. Við erum að tala um að það fari kannski um 10.000 manns í gegnum Vík á dag þegar best lætur.“
Ætla má að fyrirhuguðum byggingarframkvæmdum ljúki í maí 2019. Elías er eigandi hótelsins í Vík í Mýrdal, en Icelandair Hotels sér um markaðssetningu fyrir hótelið. Það opnaði dyr sínar, sem fyrr segir, árið 2014.