Er notkun kola vaxandi eða á undanhaldi?
Desember 2015
Notkun kola hefur aukist mjög hratt í heiminum á liðnum árum. Ástæðan er fyrst og fremst geysilegur efnahagsvöxtur Kína, þar sem kolaorka hefur verið mikilvægasti orkugjafinn. Á sama tíma hefur dregið úr kolanotkun í öðrum heimshlutum, einkum í mörgum vestrænum löndum.
Þannig hefur orðið dramatískur samdráttur á kolanotkun vestur í Bandaríkjunum (sbr. grafið hér til hliðar). Sá samdráttur stafar fyrst og fremst af mjög lágu verði þar vestra á jarðgasi (sem þess vegna er ódýrari orkugjafi til raforkuframleiðslu). Auk þess sem mengunarvarnarreglur gera raforkuframleiðslu með kolum síður samkeppnishæfa en var.
Fyrir vikið eru nú ekki byggð nein ný kolaorkuver í Bandaríkjunum. Þar fjárfesta orkufyrirtæki fyrst og fremst í gasorkuverum annars vegar og endurnýjanlegri orku hins vegar. Í síðarnefnda geiranum er mestur kraftur í byggingu vindorkuvera.
Einhver mikilvægasta spurningin í raforkugeiranum í dag er hvort heimurinn sé að ná hámarksnotkun í kolum (peak-coal). Fyrir einungis örfáum árum síðan var almennt talið langt í að svo færi. En efnahagsslakinn í Kína hefur valdið því að mögulegt virðist að peak-coal kunni að vera innan seilingar – eða jafnvel upp runnin.
Þar skiptir mestu hvort notkun kola til raforkuframleiðslu í Kína sé hætt að aukast – og hversu mikill vöxtur verði í kolanotkun á Indlandi á næstu árum.
Um þetta allt eru reyndar afar skiptar skoðanir. Meðan sumir segja Kína hafa náð peak-coal eru aðrir á því að svo sé alls ekki. Og að svo geti farið að kolanotkun í Kína muni á næstu tveimur til þremur áratugum aukast gríðarlega. Þarna er því í reynd uppi alger óvissa – en engu að síður gaman að orna sér við svona spár þegar dregur að áramótum.