Hótel Vatnsmýri (rís ekki) – Borgin stýrir uppbyggingu Hótela
September 2015
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, segir að 17.500 fermetra hótel sem stefnt sé að reisa í Vatnsmýri sé ekki hluti af uppbyggingasvæði Valsmanna. Um sé að ræða frátekið land fyrir framtíðaráfanga Landspítalans. Mikilvægt sé að dreifa hóteluppbyggingu svo hún sé ekki öll í miðborg og Kvos.
Borgarstjóri greinir frá þessu á Facebooksíðu sinni í gærkvöldi.
Hann segir að einhverjir séu að velta fyrir sér frétt RÚV af nýju hóteli í Vatnsmýri. Margar spurningar hafi vaknað og segist Dagur vilja svara því helsta, en hann segir margt sem komi til. Hann bendir m.a. á, að þetta sé önnur af tveimur atvinnulóðum sem sé á milli Hlíðarendasvæðisins og Hringbrautar.
„Af hverju ekki íbúðir? Við Hringbraut er ekki hægt að skipuleggja íbúðabyggð vegna hljóðvistar.
Er þetta hluti af svæði eða samningum við Valsmenn? Nei. Þetta er ekki hluti af uppbyggingarsvæði Valsmanna heldur var þarna var áður frátekið land fyrir framtíðaráfanga Landspítalans, en þegar ljóst var að þeir kæmust fyrir norðan Hringbrautar runnu þessir skikar aftur til borgarinnar,“ skrifar Dagur.
Þetta staðfestir Brynjar Harðarson, framkvæmdastjóri Valsmanna, í samtali við mbl.is.
S8 átti forkaupsrétt að lóð við hús Íslenskrar erfðagreiningar
„Er vont að þarna verði hótel? Nei, ekki endilega. Það er mikilvægt að dreifa hótel-uppbyggingu þannig að hún sé ekki öll í miðborg og Kvos. Og ef við leyfum engin hótel þá mun ferðaþjónustan bara auka þrýstinginn á íbúahverfin miðsvæðis.
Hvernig tengist þetta uppbyggingu stúdentagarða á svæði HÍ? Að síðustu má svo nefna að þessi fjárfestir [S8 – innskot blm] átti forkaupsrétt að lóð við hús Íslenskrar erfðagreiningar sem tókst að losa um með þessari lóðasölu. Þar með skapast rými til þekkingaruppbyggingar og byggingu um 200 stúdentaíbúða á svæði HÍ, sem er gríðarlega jákvætt,“ skrifar Dagur jafnframt.
Borgin áskilur sér rétt til að stýra uppbyggingu hótela
Í annarri færslu, sem var birt í morgun sem ummæli við pistil Egils Helgasonar fjölmiðlamanns, segir Dagur, að fjölgun ferðamanna sé staðreynd. Þeim hafi fjölgað um 109% frá 2009, en til samanburðar hafi hótelrýmum fjölgað um 29%.
„Samt þykir okkur nóg um. Borgin hefur lýst því yfir að í Kvosinni eigi hótelfermetrar ekki að fara yfir 23% af byggðum fermetrum, en fyrirliggjandi áform munu fylla þann kvóta. Við erum að skoða önnur svæði þar sem við höfum áhyggjur af mettun og einhæfni og áskiljum okkur allan rétt til að stýra þessari þróun, eftir því sem við getum, en bæði lög og reglur setja okkur nokkrar skorður í því. Þó virðist ljóst að við verðum að hugsa fyrir hótel-uppbyggingu til að mæta fjölgun ferðamanna,“ skrifar Dagur og bætir við að sú uppbygging þurfi þá að vera annars staðar en í Kvos.
Hann segir umrædda fjárfestingu og uppbyggingu bæta lífsgæði og gera borgina betri.
September 2015
Stefnt er að því að hefja framkvæmdir við átján þúsund fermetra hótel í Vatnsmýri. Eigandinn segir hótelið líklega verða það stærsta á Íslandi.
Nýverið var svo ákveðið að ráðast í byggingu hótels á lóð við gatnamót Hringbrautar og Nauthólsvegar, nærri Hlíðarenda. Ljóst er að hótelið verður engin smásmíði.
„Félagið S8 ætlar að byggja allt að 360 herbergja hótel sem er í samræmi við samkomulag Reykjavíkurborgar og félagsins frá því fyrr á þessu ári. Hönnunarvinna er hafin og það liggja fyrir frumdrög að teikningum. Skipulagið liggur fyrir. Og þetta er allt samkvæmt gildandi skipulagi,“ segir Jóhann Halldórsson, eigandi S8, og bætir því við að stefnt sé að því að hefja framkvæmdir við hótelið í maí á næsta ári. Framkvæmdir við gatnagerð eru þó þegar hafnar. Jóhann segir að byggingin verði tæplega 18 þúsund fermetrar og sennilega stærsta hótel landsins.
Hann segir stefnt að því að opna hótelið 2017. „Það er reyndar bjartsýni. En við Íslendingar erum bjartsýnir,“ segir Jóhann en hafnar eru viðræður við nokkra aðila um undir hvaða merkjum hótelið verði. „En það verður eitthvað þekkt hótel sem mun hefja hér rekstur.“
Ekki er búið að fjármagna verkefnið en S8 verður eigandi verkefnisins. „En síðan verður það væntanlega einhver af íslensku viðskiptabönkunum sem mun styðja við verkefnið,“ segir Jóhann sem telur að verkefnið kosti um 8 milljarða.
Jóhann segir hótelframboð ekki nærri nóg til að anna eftirspurn. „Samkvæmt þeirri kynningu sem Arion banka var með í morgun er alveg ljóst að þótt þetta hótel verði byggt og allt annað sem er í burðarliðnum samkvæmt því sem Reykjavíkurborg hefur upplýst um, þá er það ekki nándar nærri nóg til að anna eftirspurn. Miðað við tvær milljónir ferðamanna í árslok 2017 vantar líklega tvöfalda þá tölu. Í dag er nýtingin 84% sem er það mesta sem þekkist í heiminum.“
Aðspurður segist Jóhann ekki hafa áhyggjur af nálægð hótelsins við Reykjavíkurflugvöll. Hann segir samkomulag Reykjavíkurborgar og ríkisins alveg skýrt, um að hinni svokallaðri neyðarbraut eigi að loka. „Skipulagið eins og það er í dag gerir ráð fyrir því að þessi samningur verði efndur. Og það er ekki hægt að byggja á neinum öðrum forsendum. “