Besta sundlaugin? – 26 sundlaugar á einum mánuði
Mars 2017
„Þá er febrúarmánuði lokið. Markmiðið í febrúar var að dýfa sér ofan í allar almenningssundlaugar í póstnúmerum 101 til 310,“ segir Mosfellingurinn Hinrik Wöhler sem skellti sér í 26 sundlaugar í febrúar.
„Það er höfuðborgarsvæðið, Suðurnesið, Akranes, Borgarnes og Hvalfjarðarsveit. Sundlaugarnar voru 26 talsins. Fékk góða gesti með mér í laugarnar og þakka þeim innilega fyrir félagsskapinn. Það er eitthvað við það að tala við fólk í pottinum, það er opnara og engin raftæki til að trufla samræður. Hugsanlega er það líka klórinn og að vera í sundskýlunni einum fata sem gerir það að verkum að manneskjan gefur meira af sér en ella.“
Hinrik segist hafa sterkar skoðanir á almenningssundlaugum og skrifaði hann því eftirfarandi umsögn um laugarnar á Facebook:
Afþreying: Garður. Frábært körfuboltaspjald, gott í stinger.
Ambiance: Klébergslaugin. Friðsæl og góð ára á Kjalarnesi.
Eimbaðið: Kópavogslaug. Stórt rými og hitastig sem sæmir heimsklassa vatnsgufu.
Fjárfesting: Álftaneslaug. Öldulaugin mun skila sér margfalt út í hagkerfið.
Hagkvæmasta laugin: Heiðarborg í Hvalfirði. Verð er 0 kr.
Hönnun: Árbæjarlaugin. Getur synt úr innilaug í útilaug, major key.
Inniklefinn: Saunuklefinn í Njarðvík. Algjört leyni.
Ísbaðið: Grindavík. Góð dýpt á ísbaðinu og nálægð við aðra potta.
Líkamsræktaraðstaða: Sundhöll RVK. Bekkpressa á sundlaugarbakkanum, engin samkeppni þar.
Ofmat: Laugardalslaugin. Margt um manninn og langt milli potta.
Potturinn: Bjarnalaugin. Heiti potturinn.
Saunan: Lágafellslaug. Náttúruhljóðin er kostur. Mjög hrifinn af Amazon froskinum.
Sundlaugarvörður: Sundhöll HFJ. Jói baðvörður er eldri en tvívetra í geiranum.
Útiklefinn: Seltjarnarnes. Stór plús að hafa hitara.
Þeytivindan: Varmárlaugin. Max 3 sek og þú ert með þurra skýlu.
Þjónustan: Vogar. Gott viðmót og fríar sundnúðlur til að fljóta.
Þegar horft er til allra þátta eru þessar þrjár laugar í persónulegu uppáhaldi:
Varmárlaug 16/17
Sundlaugin í Grindavík 15,5/17
Sundlaugin á Vogum 14,5/17
Sömuleiðis tel ég eftirfarandi þrjár laugar verma botninn:
Sundlaugin í Heiðarborg, Hvalfjarðarsveit 3/17
Laugardalslaugin 5/17
Jaðarsbakkalaug, Akranes (framkvæmdir í gangi). 5,5/17