Ég spurði hann hvort það væri ekki frekar það að menn vildu ekki taka stúlkur á samning í pípulagningum.
Hann reyndist ekki mótfallinn því að taka konu sem nema og innan skamms var Oddný komin á samning hjá honum. „Ég uppgötvaði hvað það var margt sem ég var að læra á þessu og hvað þetta var sjálfseflandi,“ segir Oddný.
Rætt er við Oddnýju og fleiri konur í myndbandi sem er hluti af herferðinni #kvennastarf sem hefur það markmið að berjast gegn mýtum um starfsgreinar sem ýmist eru skilgreindar kvenna- eða karlastörf. Í myndbandi, sem má sjá hér (smella hér) er fjallað sérstaklega um pípulagnir og rætt við konur sem starfa innan greinarinnar.
Frá upphafi hafa 1.159 manns lokið sveinsprófi í pípulögnum á Íslandi. Þar af eru aðeins fjórar konur. 54 karlmenn eru við nám í pípulögnum í dag og aðeins ein kona. En pípulagningar eru ekkert karlastarf, eins og meðfylgjandi myndband sýnir.