Er Hellisheiðarvirkun til sölu?

Heimild:  

 

Janúar 2017

Stjórn OR hafnaði tilboði sem barst 2. desember í virkjunina. Kom þá fram að engin ákvörðun hefði verið tekin um sölu virkjanasamstæðu OR og að slíkt væri ekki á færi stjórnar heldur eigenda fyrirtækisins.Einkahlutafélagið MJDB vill kaupa Hellisheiðarvirkjun af Reykjavíkurborg, Akraneskaupstað og Borgarbyggð. Sveitarfélögin þrjú fengu fyrr í mánuðinum tilboð í eignarhluti sína en Orkuveita Reykjavíkur (OR) hafnaði um miðjan desember tilboði sama félags í virkjunina í annað sinn. Útlit er fyrir að forsvarsmenn sveitarfélaganna fundi um málið á næstu vikum.

Image result for Magnús B. Jóhannesson

Magnús B. Jóhannesson, framkvæmdastjóri hjá America Renewables

MJDB er að stærstum hluta í eigu Magnúsar B. Jóhannessonar, framkvæmdastjóra hjá America Renewables í Kaliforníu, en í samtali við Markaðinn vildi hann ekki tjá sig um tilboðin eða það hvort aðrir innlendir eða erlendir fjárfestar koma að þeim. Magnús á 70 prósenta hlut í MJDB en lögmannsstofan Lagahvoll er skráð fyrir 30 prósentum. Daði Bjarnason, stofnandi og einn eigenda Lagahvols, vildi ekki tjá sig um málið og vísaði á Magnús. America Renewables var stofnað árið 2009 og er einkahlutafélag með höfuðstöðvar í borginni Rolling Hills í Kaliforníu. Samkvæmt heimasíðu fyrirtækisins hefur það komið að ýmsum verkefnum sem tengjast endurnýjanlegum orkugjöfum.

Hellisheiðarvirkjun er í eigu Orku náttúrunnar (ON), dótturfélags Orkuveitu Reykjavíkur (OR). Reykjavíkurborg á 93,54 prósenta hlut í OR, Akraneskaupstaður 5,53 prósent og Borgarbyggð 0,93 prósent. Samkvæmt upplýsingum frá Orkuveitu Reykjavíkur hefur ekki farið fram verðmat á Hellisheiðarvirkjun. Bókfært virði virkjana ON í árslok 2015 var um 950 milljónir Bandaríkjadala eða 107 milljarðar króna miðað við núverandi gengi. Bróðurpart þeirrar upphæðar má rekja til Hellisheiðarvirkjunar þar sem Nesjavallavirkjun hefur verið afskrifuð að verulegu leyti og Andakílsárvirkjun er komin til ára sinna.

Gunnlaugur A. Júlíusson, sveitarstjóri Borgarbyggðar, segist ætla að ræða tilboðið við meðeigendur sveitarfélagsins í OR. Regína Ásvaldsdóttir, bæjarstjóri Akraneskaupstaðar, segir að tilboðið í 5,53 prósenta eign bæjarins verði tekið fyrir í bæjarráði á morgun. S. Björn Blöndal, formaður borgarráðs Reykjavíkurborgar, staðfestir að tilboðið hefur ekki enn komið inn á borð borgarráðs.

„Ég get ekkert sagt að svo stöddu en þó að það er verðhugmynd í tilboðinu. Það er sami aðilinn sem er að bjóða bæði í Reykjavíkurborg, Akranes og Borgarbyggð,“ segir Regína.

Fleira áhugavert: