Iðnfyrirtæki brenna olíu til raforkuframleiðslu – Ótryggt afhendingaröryggi raforku á Norður- og Austurlandi
Júní 2015
Iðnfyrirtæki á Norður- og Austurlandi eru nú mörg hver búin að koma sér upp olíukötlum til raforkuframleiðslu. Ástæðan er sú að afhendingaröryggi raforku er ótryggt á köflum og hætt við að starfsemi skerðist, tryggi þau ekki sjálf aðgang að rafmagni á álagstímum.
Samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins er Vífilfell á Akureyri eitt þeirra fyrirtækja sem hafa þurft að nota olíukatla til rafmagnsframleiðslu, þegar ekki fæst afhent sú raforka sem þarf. Heimildir blaðsins herma að olíukatlar hafi verið keyrðir í allt að átta vikur árin 2013 og 2014.
Vífilfell framleiðir ýmsa gosdrykki, en í verksmiðju félagsins á Akureyri er meðal annars bruggaður Víking bjór. Slík framleiðsla þolir illa stöðvanir vegna orkuskorts.
Guðmundur Ingi Ásmundsson, forstjóri Landsnets, segir í samtali við Viðskiptablaðið að brýnt sé að auka flutningsgetu á svæðinu. „Byggðalínukerfið er algjörlega sprungið,“ segir hann.
Heimild: Viðskiptablaðið