Milljarðar í hótelherbergi í Hveragerði
Fjárfestar áforma nokkurra milljarða króna fjárfestingu í hótelum í Hveragerði á næstu árum. Gangi áformin eftir munu Hvergerðingar, sem eru um 2.400 talsins, geta hýst að minnsta kosti 800 næturgesti.
Eigendur Hótels Arkar eru að endurnýja innviði á hótelinu og íhuga að byggja við það álmu með 60 herbergjum. Með því yrðu alls 145 herbergi á Hótel Örk.
Jakob Arnarson, hótelstjóri á Hótel Örk, segir að í fyrsta sinn á þessum árstíma séu tvö sumur bókuð fram í tímann. Nær allt árið sé orðið vel bókað á hótelinu, að því er fram kemur í umfjöllun um þessi áform í Morgunblaðinu.
Heimild: Mbl