10 nýjar vindmyllur í Þykkvabæ
eftir
Vatnsidnadur
·
september 3, 2015
Fyrirtækið Biocraft ehf. ráðgerir að að reisa tíu nýjar vindmyllur í Þykkvabæ fyrir fimm til sex milljarða króna. Þar eru fyrir tvær vindmyllur sem framleiða rafmagn inn á Landsnetið.
Skipulagsnefnd Rangárþings leggur til að breytingar verði gerðar á aðalskipulagi þar sem iðnaðarsvæði til vindorkuframleiðslu verði skipulög. Vinna við umhverfismat er á lokastigi. Féttamiðillinn sunnlenska.is hefur eftir Snorra Sturlusyni, öðrum eiganda Biocraft, að verkefnið skapi allt að 50 störf á framkvæmdatíma, sem áætlaður er árið 2017.
Hver vindmylla á að framleiða þrjú til þrjú og hálft megawatt af rafmagni. Snorri segir að verkefnið skapi tækifæri i Rangárþingi ytra til að byggja upp aðstöðu fyrir frekari iðnað.
Heimild: RÚV
Tags: VindmyllurVindorkaVirkjanir og Veitur
Fleira áhugavert: