Sæstrengur gagnaflutning – Sagan
.
Júlí 2011
Nýr sæstrengur lagður
Skrifað hefur verið undir samning um lagningu á nýjum sæstreng til á milli Íslands, Norður-Ameríku, Bretlandseyja og meginlands Evrópu. Sæstrengurinn er sá fyrsti sinnar tegundar í heiminum og mun bæta mjög gagnaflutning og styðja við uppbyggingu gagnavera á Íslandi.
Að samningnum standa fyrirtækin Emerald Atlantis og TE Subcom, en það síðarnefnda hefur um árabil verið brautryðjandi í neðansjávarsamskiptatækni.
„Þetta er tímamótasamningur fyrir upplýsingatækniiðnaðinn á Íslandi og almenning og fyrirtæki. Verið er að tengja Ísland við Bandaríkin og Kanada en slík tenging er í raun ekki til staðar í dag,“ segir Þorvaldur Sigurðsson fulltrúi Emerald Atlantis á Íslandi.
Þorvaldur segir að einkum tvennt sé athyglisvert við nýja sæstrenginn, bæði stærðargráðan, það er hve mikið magn verður hægt að flytja á milli Evrópu og Bandaríkjanna en einnig lega kapalsins, en nýja tengingin mun verða sú hraðasta á milli London og New York.
Undirbúningur verkefnisins hefur staðið yfir í um þrjú ár. Bandarískir, íslenskir og breskir fjárfestar munu styðja við verkefnið en það mun kosta um tugi milljarða króna.
Sjávarbotnsrannsóknir verða gerðar í sumar og sæstrengurinn verður framleiddur í vetur. Til stendur að leggja hann í sjó árið 2012 og stefnt er að því að að hann verði tekinn í notkun seint sama ár.