Auðlindarentuskattur – 7 milljarðar
júní 2017
Í Noregi er sérstakur auðlindarentuskattur lagður á raforkufyrirtæki sem nemur 34,3% af sérstökum skattstofni sem reiknaður er fyrir hverja virkjun fyrir sig. Ef slíkur skattur væri rukkaður hér á landi myndi hann skila í kringum 7 milljörðum króna. Þetta kemur fram í svari fjármálaráðherra við fyrirspurn Oddnýjar G. Harðardóttur, þingmanns Samfylkingarinnar.
Skatturinn er aðeins lagður á þær virkjanir sem eru með uppsett afl meira en 10.000 kVA (8 MW). Tekjumatið sem byggt er á í svarinu nær ekki til hverrar virkjunar heldur upplýsingum frá raforkufyrirtækjunum og er því tekið fram að um nálgun sé að ræða. Miðað er við að meðalraforkuverð sé 5,22 krónur á kílóWattsstund. Varðandi langtímasamninga var miðað við 3,23 krónur á kílóWattsstund, en tölur um slíkt verð eru trúnaðarmál og því miðað við meðalverð hjá Landsvirkjun.
Mat á tekjum ríkissjóðs af auðlindarentuskatti að norskri fyrirmynd, miðað við núverandi skatthlutfall 34,3%, er samkvæmt framangreindum forsendum kringum 7 milljarðar segir í svarinu.