HS Orka – 50% hlutur í söluferli
Grein/Linkur: Setja 50% hlut í HS Orku í söluferli
Höfundur: Viðskiptablaðið
.
.
September 2026
Setja 50% hlut í HS Orku í söluferli
Innviðasjóður í rekstri breska félagsins Ancala hefur ákveðið að setja helmingshlut sinn í HS Orku, einu stærsta orkufyrirtæki landsins, í söluferli að því er Innherji greinir frá.
Ancala hefur ráðið alþjóðlega fjárfestingarbankann Nomura sem ráðgjafa í söluferlinu.
HS Orka, sem starfrækir m.a. sjö orkuver í Svartsengi, hefur verið í jafnri eigu innviðasjóðs Ancala og Jarðvarma, félags í eigu fjórtán íslenskra lífeyrissjóða, frá árinu 2019.
Jarðvarmi bókfærði 50% eignarhlut sinn í HS Orku Holding hf. á 42,3 milljarða króna í lok síðasta árs sem gæti gefið vísbendingu um mögulegt söluverð.
Þegar tilkynnt var árið 2019 um að Jarðvarmi hefði nýtt forkaupsrétt til að stækka hlut sinn í HS Orku og um kaup Ancala Partners á 50% hlut í orkufyrirtækinu sagði Davíð Rúdólfsson, stjórnarformaður Jarðvarma, að sérfræðiþekking Ancala á sviði endurnýjanlegrar orku og sameiginleg sýn á þau tækifæri sem væru til staðar fyrir HS Orku til lengri tíma hafi gert Ancala að ákjósanlegum meðeiganda.
HS Orka hagnaðist um 3,7 milljarða króna eftir skatta á árinu 2025. Eignir samstæðunnar námu 89,6 milljörðum króna í árslok 2025 og eigið fé var um 37,5 milljarðar.


