Patreksfjörður, jarðhitaleit – 30 l/s 36°C

Grein/Linkur:  Jarðhita er áfram leitað

Höfundur: Sigurður Bogi Sævarsson Mbl

Heimild: 

.

.

Ágúst 2026

Jarðhita er áfram leitað

Unnið er þessa dagana að jarðhitaleit við Patreksfjörð þar sem unnið er út frá tillögum jarðfræðinga ÍSOR um það hvar jarðhitageymirinn á svæðinu, sem finna þarf, gæti verið.

Eins og fram hefur komið í fréttum þá fannst jarðhiti á svæðinu þar fyrir um ári síðan og fyrir liggur að tengja eina sjálfrennandi holu sem gefur tæpa 30 l/sek af 36°C heitu vatni. Það verður tengt inn á varmadælur sem eiga að skila 68°C heitu vatni inn á hitaveitukerfið.

Jarðhitasvæðið sem fannst í fyrra er í brekkunum innan við Patreksfjörð, nærri veginum yfir Mikladal og undir Geirseyrarmúla.

Síðan þá hefur svæðið verið í skoðun; fræðimenn hafa gert mælingar og tillögur að því að bora eða dýpka þrjár rannsóknarholur í allt að 350 metra til að finna nákvæmlega hvar vatnsæðin er. Stefnt er að því að staðsetja og bora aðra vinnsluholu til vara fyrir hitaveituna eða víkka og dýpka eina rannsóknarholuna sem verður þá vinnsluhola, segir Elías Jónatansson forstjóri Orkubús Vestfjarða.

Keyptu hús fyrir kyndistöð

Verið er um þessar mundir að efla innviði hitaveitunnar á Patreksfirði með nýjum lögnum. Eins er sveitarfélagið Vesturbyggð nú að leggja neysluvatnslagnir um kaupstaðinn svo ákveðin samlegðaráhrif náist fram. Þá er verið að vinna að breytingum á húsnæði við Aðalstræti 112 sem áður hýsti Vélsmiðjuna Loga. Orkubú Vestfjarða festi kaup á húsnæðinu í vetur og þar verður kyndistöð og varmadælur hitaveitunnar, það er í grennd við borholurnar. Þar verður ný kyndistöð veitunnar sem kemur í stað eldri stöðvar sem verður lögð af.

Orkubú Vestfjarða áætlar að fjárfesta í framkvæmdum sem tengjast hitaveitunni á Patreksfirði fyrir tæpar 800 milljónir króna. Inni í þeim pakka eru til að mynda kaup á varmadælum, rafkatli, spennum og uppsetningu, tengingu kyndistöðvar við borholu og dreifikerfið, kaup og breytingar á húsnæði fyrir kyndistöð og svo áðurnefndar boranir, segir forstjóri OV.

Fleira áhugavert: