Fyrsta vindorkuver landsins –  120 MW

Grein/Linkur:  Skrifborðið óhreinna en klósettið

Höfundur: Morgunblaðið

Heimild: 

.

.

September 2026

Fyrsta vindorkuver landsins gangsett

Gangsetning Vaðölduvers, fyrsta vindorkuvers landsins, fer fram í dag.

Fjórtán vindmyllur hafa verið reistar í ár og gert er ráð fyrir að fjórtán myllur til viðbótar verði reistar á næsta ári. Uppsett afl verður allt að 120 MW og áætluð meðalársframleiðsla um 440 GWst.

Uppsetning myllanna hófst síðari hluta maí og hefur verkið gengið vel. Í sumar hafa á bilinu 200–300 manns starfað á framkvæmdasvæðinu þegar mest hefur verið.

Raforkuframleiðsla vindmyllanna ræðst af vindstyrk og er að jafnaði mest þegar vel blæs. Vindorkan fellur vel að vatnsaflskerfi Landsvirkjunar, þar sem hægt er að draga úr framleiðslu vatnsaflsvirkjana þegar vindorkuframleiðsla er mikil og auka hana aftur þegar vind lægir.

Hreyfing vindsins knýr rafal

Vindmyllur virka í grunninn þannig að vindurinn snýr spöðunum, spaðarnir snúa skaftinu og hreyfingin knýr rafal sem framleiðir rafmagn.

Þar eru í raun sömu lögmál að verki og í ljósunum sem margir muna eftir á reiðhjólum; þar lagðist lítill rafall, eða dynamó, upp að dekkinu, hreyfing hjólsins sneri honum og rafmagn varð til fyrir ljósið.

Í Vaðölduveri er þessi sama hugsun nýtt í miklu stærra samhengi, þar sem kröftugur og stöðugur vindur á svæðinu knýr spaða vindmyllanna og raforkan er flutt inn á raforkukerfið.

80 metrar háir turnar

Að setja upp fyrstu vindmylluna tók tíu daga. Þar var að verki þýski framleiðandinn Enercon ásamt undirverktökum víðs vegar að úr Evrópu, meðal annars frá Spáni og Rúmeníu.

Stór og öflugur krani – auk margvíslegs annars búnaðar – er notaður við þessar framkvæmdir. Margt þarf til við verkið, samanber að turnar myllanna, sem koma á staðinn í þremur hlutum, eru 80 metra háir.

Svo koma spaðarnir þrír; hver þeirra er 69 metra langur og vegur tæp 24 tonn. Alls er spaðahringurinn 138 metrar að þvermáli. Mannvirkið er því alls 150 metra hátt með spaða í hæstu stöðu og sést langt að.

Fleira áhugavert: