Kvíslártunguvirkjun 9,9 MW – Virkjanaleyfi, 67% framleyðsluaukning
Grein/Linkur: Framleiðslugetan eykst um 67%
Höfundur: Kristján Jónsson Mbl
.
.
Ágúst 2026
Framleiðslugetan eykst um 67%

Orkubúið Höfuðstöðvar OV á Stakkanesi á Ísafirði. Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Umhverfis- og orkustofnun veitti Orkubúi Vestfjarða (OV) 1. júlí virkjunarleyfi fyrir 9,9 MW Kvíslatunguvirkjun í Selárdal í Strandabyggð. Einnig veitti stofnunin heimild til breytinga á vatnshlotum Svartagilsvatns, Efri-Kotvatna og Þjóðbrókargils. Í tilkynningu segir að árleg framleiðslugeta OV muni aukast um 67% með virkjuninni en til stendur að ræsa hana í september 2028. Jafnframt segir OV að afhendingaröryggi raforku muni stórbatna hjá Strandamönnum.
„Um er að ræða stóran áfanga í eflingu raforkukerfisins á Vestfjörðum, ekki síst út frá afhendingaröryggi raforku í Strandabyggð og á Ströndum, en með virkjuninni er tryggð afhending á raforku úr tveimur áttum fyrir Hólmavík og nágrenni. Virkjunin er þannig skólabókardæmi um hvernig tryggja má afhendingaröryggi raforku, annars vegar með tengingu við flutningskerfið og hins vegar með byggingu virkjana í grennd við notendur.“
Fram kemur að afl virkjunarinnar nægi til að anna tvöföldu því hámarksálagi sem er á svæðinu og geti annað raforkuþörf í Strandabyggð og Ísafjarðardjúpi jafnvel svo vikum skiptir ef upp kæmi alvarleg bilun í flutningskerfi raforku, enda tryggi uppistöðulón hennar góða miðlunargetu á vatni.


