LSH Frankfurt – Hver selur lagnefnið, hvaðan er að

Grein/Linkur:  ISH Frankfurt – Stærsta lagnasýning veraldar

Höfundur:  Vatnsidnaður.net

Heimild:

.

Sýningarsvæði lSH Frankfurt eru mjög stór, margar sýningarhallir á nokkrum hæðum – SMELLA Á MYND TIL AÐ STÆKKA

.

Október 2026

ISH Frankfurt – Stærsta lagnasýning veraldar

Vatnsiðnaður.net heldur áfram að byggja upp gagnagrunn yfir framleiðendur sem kynna m.a. vörur sínar á ISH í Frankfurt í Þýskalandi, stærstu lagnasýningu veraldar. Í færslum verða framleiðendur kynntir eftir löndum og lesendum vísað á upplýsingar um þá í gagnagrunninum.

Sýningarsvæðið í lSH er svo umfangsmikið að vart er hægt að heimsækja alla bása og kynna sér vörur allra framleiðenda. Vatnsiðnaður.net hefur sótt síðustu sjö sýningar, sem haldnar eru annað hvert ár, og samhliða því skráð framleiðendur eftir löndum. Sú vinna er aðgengileg hér:

Framleiðendur lagnaefnis – gagnagrunnur Vatnsiðnaðar

Markmiðið er að veita lesendum yfirsýn yfir framleiðendur lagnaefnis víðs vegar að úr heiminum, upprunalönd þeirra og vöruframboð. Við hvern framleiðanda verður birt lógó með tengli á heimasíðu hans, þar sem nálgast má nánari upplýsingar um vörur og tæknilausnir.

Jafnframt er ætlunin að skrá hvaða söluaðilar bjóða vörur viðkomandi framleiðanda hér á Íslandi. Þannig verður auðveldara að kynna sér framleiðsluna og finna hvar hún fæst.

Fleira áhugavert: