Yamal Rússlandi – 9,89 milljónir gastonna til Evrópu

Grein/Linkur:  Sjaldan neitar Evrópa rússneska flotinu

Höfundur:  Atli Steinn Guðmundsson Mbl

Heimild:  

.

Map showing Yamal LNG exports in 2024.(Source: CHNL) – Mynd: highnorthnews.com 17.10.2026 (mynd fylgdi ekki frétt Mbl)

.

Júlí 2026

Sjaldan neitar Evrópa rússneska flotinu

Ríki álfunnar hafa keypt 9,89 milljónir tonna af Rússagasi á árinu

Evrópuþjóðir keyptu nánast allt það jarðgas sem rússneski gasframleiðandinn Yamal framleiddi á fyrri helmingi ársins 2026 áður en bann Evrópusambandsins við gaskaupum frá Rússum tók gildi en Yamal er í eigu hins einkarekna gasframleiðanda Novatek, þeim næststærsta í Rússlandi á eftir risanum Gazprom.

Fyrstu sex mánuði þessa árs keyptu Evrópuþjóðir 9,89 milljónir tonna af gasi af birgðum Yamal í Síberíu, þar sem fyrirtækið rekur nánast alla starfsemi sína, kaup sem nema átján prósentum meira en það sem Evrópa keypti af Rússlandi sama tímabil í fyrra ef marka má tölur alþjóðlega greiningarfyrirtækisins Kpler sem nú rekur starfsemi sína í 69 þjóðlöndum.

Þessar háu tölur – gaskaup í milljónatonnavís – sýna svo ekki verður um villst hve ógnarstórt hlutverk Evrópuþjóðir leika í afkomu stærsta eldsneytisframleiðanda álfunnar sem nánast öll heimsbyggðin bannfærði á einu bretti eftir innrás Pútíns í Úkraínu í febrúar 2022.

Talið er að kaup Evrópuþjóðanna nemi allt að sex milljörðum evra, jafnvirði um 860 milljarða íslenskra króna, á árinu og þeir kaupendur sem tróna í efstu sætum viðskiptavinalistans eru Frakkland, Belgía og Spánn sem í sömu röð eru kaupendur 3,6, 2,9 og 2,7 milljóna tonna af gasinu góða sem verulegur hluti Evrópu er enn algjörlega háður árið 2026, einkum til húshitunar um kalda evrópska vetur á tímum þegar sumarhitinn er víða að verða mun banvænni en vetrarkuldinn ógurlegi var á öldum áður.

Reglur ESB banna löndum álfunnar að kaupa Rússagasið í krafti skammtímasamninga sem táknar að áður en tollayfirvöld innkaupalandsins heimila för varningsins yfir landamærin þarf að staðfesta að um kaup í skjóli langtímasamnings sé að ræða. Sá böggull fylgir hins vegar skammrifi, miðað við hina gríðarlegu gasþörf Evrópu, að frá og með 1. janúar 2027 tekur bann ESB við gaskaupum samkvæmt langtímasamningum gildi. Pútín á að bíta úr nálinni fyrir Úkraínu.

Á sama tíma hlakkar í norska olíuiðnaðinum sem frá og með áramótum verður nánast eina gasvon Evrópu við dyraþrepið. Ná Norðmenn að gasfæða heila álfu?

Að öllu virtu minnir evrópska gaslandslagið á karlinn í þjóðsögu Jóns Árnasonar þar sem ekkert mátti þiggja af álfunum á Jónsmessunótt. Stæðust menn það áttu þeir allt sem þeim var boðið. Svo var það karlinn sem álfkonan bauð flotið og karl svaraði „Sjaldan hef ég flotinu neitað,“ og missti vitið um leið.

Ekki að Evrópubúar missi vitið yfir gasi, en álfan má ef til vill vænta krappra kjara á þeim vettvangi.

Fleira áhugavert: