Elkem, Carbfix – Binda CO2 Grundartanga

Grein/Linkur:  Stórt skref í loftslagsmálum

Höfundur:  Orkuveitan

Heimild: 

.

Járn­blendi­verk­smiðjan í for­grunni og ál­ver Norðuráls á Grund­ar­tanga fjær. Mynd – mbl.is/Á​rni Sæ­berg 20.11.2024

.

Nóvember 2024

Stórt skref í loftslagsmálum

Carbfix hefur nú undirritað samning við Elkem á Íslandi og Þróunarfélag Grundartanga um að binda koldíoxíð frá verksmiðju Elkem á Grundartanga. Samningurinn var undirritaður í gær að viðstöddum m.a. fulltrúum Orkuveitunnar og Carbfix, sveitarfélaga á svæðinu og Guðlaugi Þór Þórðarsyni, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.

Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Orkuveitunnar segir um samstarfið: „Þetta samstarf er mikilvægt skref í átt að sjálfbærari framtíð og sýnir enn á ný að við getum nýtt íslenskar lausnir til að takast á við loftslagsvandann. Þetta er jafnframt stórt skref í átt að kolefnishlutlausri starfsemi, en meginmarkmið samstarfsins er að fanga koldíoxíð úr útblæstri Elkem og binda til frambúðar með því að nýta aðferð Carbfix til að umbreyta gasinu í stein djúpt neðanjarðar.“
Fyrsti áfangi samstarfsins felur í sér að bora rannsóknarholu en verkefnið miðar að því að þróast frá rannsóknarstigi yfir í fulla föngun og bindingu á allt að 450.000 tonnum árlega af koldíoxíði frá Elkem á Íslandi.

„Við gerum ráð fyrir að fleiri fyrirtæki og geirar fylgi í kjölfarið svo við getum spornað við þeim alvarlegu breytingum sem þegar eru hafnar á loftslaginu,“ segir Edda Aradóttir, framkvæmdastýra Carbfix. Hún segir að nú byrji nýr kafli í sögu stóriðju á Íslandi og kísilmálmframleiðslu í heiminum þegar horft er til gróðurhúsalofttegunda.

carbfix orkuveitan elklem.webp

Við undirritun samningsins

Fleira áhugavert: