Hafvarmaskiptatækni Kína – 10MW, OTEC-orkuver, sagan

Grein/Linkur:  Samið um 10 MW OTEC-orkuver

Höfundur:  Stefán Gíslason

Heimild:  

.

.

Apríl 2013

Samið um 10 MW OTEC-orkuver

Hergagnaframleiðandann Lockheed Martin gekk frá frá samningi um byggingu 10 MW orkuvers undan ströndum Kína, þar sem rafmagn verður framleitt með svonefndri hafsvarmaskiptatækni (e. Ocean Thermal Energy Conversion (OTEC)). Undirbúningur að þessu hefur staðið frá því í apríl, en orkuverið verður það stærsta sinnar tegundar í heiminum og hið fyrsta sem nýtir OTEC-tæknina á viðskiptalegum forsendum. Vonir standa til að innan 5 ára verði hægt að hefjast handa við byggingu mun hagkvæmara 100 MW OTEC-orkuvers á grunni reynslunnar sem fæst í þessu verkefni. OTEC-tæknin byggir á því að nýta hitamun djúpsjávar og uppsjávar með ammoníak sem vinnslumiðil sem jafnframt er látinn drífa gufuhverflarafal. Hafsvæði u.þ.b. 80 landa nálægt miðbaug hafa hitastig sem gerir þetta mögulegt.
(Sjá frétt PlanetArk í dag).

Fleira áhugavert: