Eþíópía, Ashegoda – Stærsta vindorkuver Afríku
Grein/Linkur: Vindorka
Höfundur: Stefán Gíslason, 2020
.
.
Október 2013
Vindorka
Hafið var raforkuframleiðsla í Ashegoda vindorkuverinu í Eþíópíu, en í þessu stærsta vindorkuveri Afríku eru 84 vindmyllur með samtals 120 MW uppsett afl. Framkvæmdir á svæðinu hófust árið 2009 og var heildarkostnaður við þær um 210 milljónir evra (tæpir 35 milljarðar ísl. kr.). Raforkuframleiðsla í Eþíópíu byggist að langmestu leyti á vatnsafli en stjórnvöld vilja auka fjölbreytnina, m.a. til þess að vera minna háð úrkomu. Auk vindorku eru uppi stór áform um nýtingu jarðvarma, m.a. í samstarfi við íslensk-ameríska fyrirtækið Reykjavík Geothermal.