Kína – Þarf meiri orku, sagan

Grein/Linkur:  Kína þarf miklu meira

Höfundur:  Ketill Sigurjónsson

Heimild:  Orkubloggið

.

.

Kína þarf miklu meira

WEO

WEO

Í leikskólanum syngja krakkarnir „bílarnir aka yfir brúna, yfir brúna… allan daginn“. Og það á svo sannarlega við um Kína. Ég hef verið svo gæfusamur að kynnast vel nokkrum kínverskum „uppum“, sem útskýra fyrir manni hreint ævintýralegan uppgang kínverska efnahagslífsins. Líklega má segja að í Kína sé nú að sumu leyti það sama að gerast eins og í Bandaríkjunum seint á 19. öld. Undir allt öðrum pólitískum öflum þó. En það sem er sameiginlegt eru sögulega miklar fjárfestingar og mikil eftirspurn eftir orku.

Það sem er jafnvel enn magnaðra, er að flest þetta vel menntaða og unga fólk frá Kína virðist sannfært um að merkasti maður sem uppi hefur verið sé fjöldamorðinginn Maó. Ástæðan er að vísu nokkuð lógísk – margir Kínverjar óttast að án stjórnar kommúnistaflokksins muni upplausnarástand verða i landinu með skelfilegum afleiðingum.

Chinaimports

Chinaimports

Þegar Bandaríkin urðu efnahagslegt stórveldi var landið að mestu sjálfu sér nægt um mikilvægustu auðlindir. Þetta á ekki við um Kína. T.d. er Kína þegar orðið háð innfluttri olíu (allt síðan 1993 sbr. stöplaritið hér til hliðar). Og umræða um að minnka losun gróðurhúsalofttegunda verður nánast hlægileg þegar litið er til þess hversu mjög orkunotkun á eftir að aukast í Kína á næstu árum. Og mest aukningin mun koma frá kolum og olíu. Til allrar hamingju hefur sjaldan verið framleitt meira af olíu en í dag og við skulum rétt vona að enn sé langt í peak-oil. Því Kínverjar munu þurfa meira – miklu meira.

0508china_imports

0508china_imports

Einmitt þess vegna hafa kínversk stjórnvöld verið iðin við það undanfarið, að tryggja sér æ betri aðgang að olíu, ekki síst frá Afríkulöndunum. Sbr. myndin hér til hliðar. Takið eftir Angóla – einungis eitt Afríkuríki framleiðir meiri olíu en Angóla (Nígería) og hvergi í álfunni er hraðari efnahagsvöxtur. Og spillingin í landinu er hroðaleg.

Shanghai_Freeway

Shanghai_Freeway

En þó svo aukin eftirspurn frá Kína eigi þátt í háu olíuverði, er vert að hafa líka annað i huga. Ekki þarf mikinn hiksta i Kína til að olíuverð lækki snögglega. Og alveg sama hvað ljósin skína skært í Shanghai nú – Kína á eftir að lenda í samdráttartímabili. Stóra spurningin er bara hvenær það verður? Þess vegna er og verður spákaupmennska með olíu alltaf áhættusöm. En líka oft þess virði!

Fleira áhugavert: