Endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna kaupa á varmadælu til upphitunar íbúðarhúsnæðis – Reglugerð nr. 850/2014

Grein/Linkur:  Endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna kaupa á varmadælu til upphitunar íbúðarhúsnæðis

Höfundur:  Félagsmálaráðuneytið

Heimild: 

.

.

1. gr.

Gildissvið.

Eftir því sem nánar er kveðið á um í reglugerð þessari skal ríkisskattstjóri endurgreiða þann virðisaukaskatt sem fellur til vegna kaupa á varmadælu til upphitunar íbúðar­húsnæðis. Endurgreiðsla samkvæmt reglugerð þessari tekur ekki til frístundahúsnæðis eins og það er skilgreint í 2. gr. laga nr. 75/2008, um frístundabyggð og leigu lóða undir frístundahús.

2. gr.

Skilyrði endurgreiðslu.

Með varmadælu skv. 1. málsl. 1. gr. er átt við dælubúnað og leiðslur sem mynda lokað gas- eða vökvakerfi sem stuðlar að betri nýtingu raforku við upphitun á íbúðarhúsnæði.

Skilyrði endurgreiðslu er að varmadælan sem umsóknin varðar hafi verið sett upp í íbúðar­húsnæði sem er í eigu umsækjanda.

Heimild til endurgreiðslu samkvæmt reglugerð þessari nær til þess virðisaukaskatts sem fellur til vegna kaupa á varmadælu en ekki til þess virðisaukaskatts sem fellur til vegna uppsetningar á dælunni, þ.m.t. er akstur og ráðgjöf. Ef sami aðili selur varmadælu og uppsetningu skal aðgreina verð hvors um sig á sölureikningi. Frá þessu skilyrði er heimilt að víkja ef umsækjandi getur með öðrum sannanlegum hætti upplýst um verð varma­dæl­unnar.

Þegar um innlendan söluaðila er að ræða er jafnframt skilyrði að seljandi varma­dæl­unnar sé skráður á virðisaukaskattsskrá á því tímamarki sem viðskiptin áttu sér stað.

3. gr.

Umsókn.

Umsókn um endurgreiðslu skal beint til ríkisskattstjóra á því formi sem hann ákveður. Með umsókn skal fylgja frumrit sölureiknings eða greiðsluskjal frá tollyfirvöldum og staðfesting á því að sölureikningur hafi verið greiddur.

4. gr.

Endurgreiðslutímabil.

Hvert endurgreiðslutímabil er tveir mánuðir (janúar-febrúar, mars-apríl, o.s.frv.). Þeir sem eiga rétt á endurgreiðslu virðisaukaskatts samkvæmt ákvæðum þessarar reglu­gerðar skulu eftir lok hvers endurgreiðslutímabils senda ríkisskattstjóra endur­greiðslu­beiðni ásamt tilskildum gögnum skv. 3. gr. Endurgreiðsla skal fara fram eins fljótt og auðið er en þó aldrei síðar en 30 dögum eftir að beiðnin barst ríkis­skattstjóra.

5. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 1. mgr. 49. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi og gildir til 29. maí 2019.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 12. september 2014.

F. h. r.

Guðmundur Árnason

Fleira áhugavert: