Skagafjörður, heitir pottar – Spara heitt vatn
Grein/Linkur: Skagfirðingar sleppi heitu pottunum
Höfundur: Morgunblaðið
.
.
Desember 2023
Skagfirðingar sleppi heitu pottunum
Frost norðanlands hefur mest farið yfir 16 gráður í dag; á Sauðárkróksflugvelli og Grímsstöðum á Fjöllum. Hafa Skagafjarðarveitur hvatt íbúa til að fara sparlega með heita vatnið og sleppa því að fara í heita pottinn.
„Nú þegar frostið er í tveggja stafa tölu dag eftir dag beina Skagafjarðarveitur þeim tilmælum til viðskiptavina sinna að fara sparlega með heita vatnið svo ekki þurfi að koma til lokana. Sérstaklega skal bent á sleppa notkun á heitum pottum meðan kuldinn er sem mestur,“ segir í tilkynningu frá Skagafjarðarveitum til íbúa.
Veðurspár gera ráð fyrir áframhaldandi kuldatíð næstu daga, með allt að 15 stiga frosti á Norðurlandi.
Sveitarfélagið Skagafjörður sá ástæðu til þess í vikunni, vegna mikilla kulda undanfarið, að vara við mikilli klakamyndun og ísingu í ám og lækjum. Eru foreldrar og forráðamenn hvattir til að brýna fyrir börnum að leika sér ekki á ísnum á Sauðá, eða í kringum ána.
„Nauðsynlegt er að ræða við börn um hættuna sem stafar af slíkum leik. Talsvert vatn er einnig farið að renna ofan á ísnum á köflum,“ segir í frétt á vef Skagafjarðar.