Hróðnýjarstaðir – 40 vindmyllur, 160 MW

Grein/Linkur: Vilja vindorkugarð á sauðfjárbú í Dalabyggð

Höfundur: Haraldur Guðmundsson

Heimild:

.

.

Október 2017

Vilja vindorkugarð á sauðfjárbú í Dalabyggð

Sveitarfélagið Dalabyggð og eigendur einkahlutafélagsins Storm Orku undirrituðu vilja­yfirlýsingu um vindorkugarð með allt að 40 vindmyllum. Eigendur félagsins keyptu í byrjun ágúst 2017 jörðina Hróðnýjarstaði, skammt frá Búðardal, og stefna að íbúafundi í nóvember þar sem áformin verða kynnt.

„Viljayfirlýsingin var undirrituð í september en hún er almenns eðlis og snýst aðallega um skipulagsmál. Samhliða var ákveðið að halda íbúafund þar sem þetta fyrirtæki myndi kynna sín áform,“ segir Sveinn Pálsson, sveitarstjóri Dalabyggðar.

Storm Orka er í eigu Magnúsar B. Jóhannessonar, framkvæmdastjóra hjá bandaríska fyrirtækinu America Renewables. Magnús og fjölskylda hans eiga Hróðnýjarstaði en um er að ræða 26 hektara jörð af ræktuðu landi ásamt fjárstofni, um 1.000 fjár. Samkvæmt þeim upplýsingum sem sveitarfélagið hefur gæti fullkláraður vindorkugarðurinn framleitt allt að 160 megavött af raforku.

„Þeir virðast hafa þá trú á þessu að þeir keyptu jörðina og það var skref sem byrjað var á áður en skrifað var undir þessa viljayfirlýsingu. Þeim er reyndar alveg ljóst að þetta getur farið á hvorn veginn sem er. Á svona frumstigi liggur ekki fyrir mikið af gögnum en engu að síður liggja fyrir upplýsingar um áformað afl og fjölda vindmylla. Viljayfirlýsingin snýr að því að við ætlum að vinna skipulagsvinnuna með eðlilegum hætti og tíma. Öll gögn varðandi umhverfismat og fleira því um líkt kemur á síðari stigum,“ segir Sveinn.

Magnús vildi ekki tjá sig um áform Storm Orku þegar blaðamaður náði tali af honum í gær. Félagið hét þangað til í mars síðastliðnum MJDB ehf. Fréttablaðið greindi í ársbyrjun frá tilraunum þess til að kaupa Hellisheiðarvirkjun af Orkuveitu Reykjavíkur. Reykjavíkurborg, Akraneskaupstaður og Borgarbyggð fengu þá einnig tilboð í eignarhluti sína í virkjuninni. Magnús vildi þá ekki tjá sig um tilboðið, sem var síðar hafnað, eða þá hvort aðrir innlendir eða erlendir fjárfestar hefðu komið að því.

.

Myndaniðurstaða fyrir hróðnýjarstaðir

.

Hér er sýnt hvernig vindorkug­arður á Hróðnýjar­stöðum gæti litið út í framtíðinni. Ekki er búið að ákveða end­an­leg­an fjölda vind­mylla. Tölvu­mynd/​Byggð á Google Maps/​Storm orka

Fleira áhugavert: