Borað 1907 – Ekkert kalt vatn, glópagull, 87°C heitt vatn
Grein/Linkur: BORAÐ EFTIR JARÐHITA Í REYKJAVÍK
Höfundur: Land & Saga
.
.
BORAÐ EFTIR JARÐHITA Í REYKJAVÍK
Undir stjórn Rafmagnsveitu Reykjavíkur (stofnuð 1921) var byrjað að bora eftir heitu vatni við Þvottalaugarnar í Laugardal með þýskum haglabor, sem gekk undir nafninu Gullborinn.
Borinn hafði upphaflega verið fluttur til landsins til að bora eftir köldu vatni í Vatnsmýrinni, en við þá borun fannst glópagull sem leiddi til tímabundinnar gullleitar á Íslandi.
Á næstu tveimur árum voru boraðar 14 holur í Laugardalnum, sem nýttar voru til húshitunar. Þær voru 20-246 m djúpar og gáfu 14 l/s af sjálfrennani 87°C heitu vatni.