Rafmagnsbílar „nýr bensínbíll“ – Kostir, gallar
Grein/Linkur: Nýr „bensínbíll“
Höfundur: Sigurður Ingi Friðleifsson
.
.
Bráðnauðsynleg innleiðing á rafbílum er nú í fullum gangi hérlendis en þrátt fyrir ævintýralegt úrval af frábærum rafbílum er enn nokkuð um að nýskráðir bensín- og dísilbílar laumi sér á göturnar. Það kemur mér nokkuð á óvart að þeir sem hafa á annað borð efni á nýjum bíl velji stundum glænýja bensín- og dísilbíla í stað sambærilegs rafbíls. Sumar ákvarðanir eiga sér örugglega eðlilegar skýringar, en getur verið að tæknihræðsla og íhaldssemi spili stundum inn í? Prófum aðeins að ímynda okkur að rafbíll sé í raun bara ný tegund af „bensínbíl“ og berum hann saman við hefðbundin bensínbíl.
Viðskiptavinur kæmi þá á bílasölu og bæði sölumann um að lýsa þessum nýja „bensínbíl“ í samanburði við sambærilegan en hefðbundinn bensínbíl.
Kostir nýja „bensínbílsins“
- Þökk sé frábærri orkunýtni er þessi nýi „bensínbíll“ með rauneyðslu á bilinu 1-2 L/100km í samanburði við 5-8 L/100 km í hefðbundna bílnum.
- Hann er líka með nýja tækni þannig að í raun er hægt að setja upp eigin „bensínstöð“ á heimilinu sem tryggir að hann er alltaf með fullan tank á morgnana og þú þarft nánast aldrei að fara á bensínstöð.
- Svo er hann svo merkilegur að það er hægt að setja íslenskt „bensín“ á hann þannig að þú þarft ekki að hafa áhyggjur af því hvort bensínið komi frá Mið Austurlöndum eða Rússlandi.
- Svo er magnað að vélin í honum getur „hreinsað bensínið“ þannig að það losnar engin heilsuspillandi mengun eða gróðurhúsalofttegundir við keyrsluna.
- Þrátt fyrir þetta er vélin svo einföld að hún þarf miklu minna viðhald og þú þarft aldrei að kaupa smurningu og munt líklega borga almennt miklu minna í viðhaldskostnað.
-
Svo er hann líka kraftmeiri með miklu betri hröðun en samt miklu hljóðlátari.
Gallar nýja „bensínbílsins“
En gallarnir miðað við hefðbundna bílinn? Jú, ef þú ferð í mjög langar ferðir þá tekur bara 5 mínútur að setja bensín á hefðbundna bílinn en 15-30 mínútur að setja bensín á nýja „bensínbílinn“. Svo er nýi „bensínbílinn“ örlítið dýrari í innkaupum en heildarkostnaður er þó minni þegar innkaup og rekstur eru tekin saman.
Stóra spurningin er hvort þessi gallar séu meiri en samanlagðir kostir hér að ofan? Getur verið að rafbílar myndu seljast enn betur ef þær væru ekki ný tækni heldur betrumbót á hefðbundnum bíl?