Rafmagnsflugvél Íslandi 2028 – Innanlandsflug
Grein/Linkur: Icelandair stefnir núna á þrjátíu sæta rafmagnsflugvél fyrir innanlandsflug
Höfundur: Kristján Már Unnarsson Vísi
.
.
September 2022
Icelandair stefnir núna á þrjátíu sæta rafmagnsflugvél fyrir innanlandsflug
Rafmagnsflugvélin, sem Icelandair tilkynnti á föstudag að félagið hygðist taka þátt í að þróa með Heart Aerospace, verður uppfærð útgáfa af minni vél, sem sænski flugvélaframleiðandinn var búinn að vera með í þróun. Stefnt er að því að nýja flugvélin verði komin í farþegaflug árið 2028, eftir sex ár.
Icelandair og Heart Aerospace höfðu áður skrifað undir viljayfirlýsingu um nítján sæta rafmagnsflugvél, ES-19, sem átti að verða tilbúin árið 2026. Ný útfærsla af vélinni, ES-30, mun koma í stað hennar, og verður með þrjátíu sætum, og segir Icelandair að hún muni nýtast vel í innanlandsflugi á Íslandi.
Nýja gerðin verður 22,7 metra löng, 5,2 metrum lengri en sú fyrri. Vænghafið hefur breikkað úr 23 metrum á ES-19 í 30,77 metra á ES-30.
Farþegarýmið verður talsvert stærra, víkkar úr 1,46 metrum upp í 2,21 metra, sem gefur færi á 2+1 sætaskipan í ES-30 miðað við 1+1 sætaskipan í ES-19. Þótt hún sé gefin upp fyrir 30 sæti býður rýmið einnig upp á 34 sæta útfærslu með þrengra bili á milli sæta, eða 29 tommur. Þá gerir hönnun hennar ráð fyrir að síðar verði hægt að smíða lengri útgáfu með allt að 50 sætum.
Fjölgun farþegasæta úr nítján í þrjátíu er ekki eina breytingin. Áður var miðað við að hún gengi eingöngu fyrir rafmagni en núna er gert ráð að hún verði tvinnvél og geti einnig gengið á flugvélaeldsneyti.
Anders Forslund, stofnandi og forstjóri Heart Aerospace, útskýrir breytinguna með því að ES-19 vélin hafi upphaflega eingöngu verið hugsuð fyrir norrænan heimamarkað. Eftir að tilkynnt hafi verið um smíði hennar hafi óskir komið alls staðar að úr heiminum.
„ES-19 var sérsniðin fyrir norræna markaði. Til að búa til flugvél sem getur flogið alls staðar þurfti að breyta henni,“ segir Forslund.
Breyta hafi þurft farangursrýminu. Þyngd rafhlaðna hafi verið krefjandi og jafnframt hafi öryggiskröfur um minnst 45 mínútna varaafl, eða 100 sjómílur, kallað á uppfærslu í stærri vél.
Í kynningu Heart Aerospace og Icelandair á flugvélinni kemur fram að drægni hennar verði um 200 kílómetrar með 30 farþega á rafmagni eingöngu, 400 kílómetrar með blöndu af rafmagni og sjálfbæru flugvélaeldsneyti, en allt að 800 kílómetrar með 25 farþega.
„Þannig gæti flugvélin nýst á öllum flugleiðum innanlands og dregið umtalsvert úr kolefnislosun,“ segir Icelandair.
Heart gerir jafnframt ráð fyrir að flugdrægni aukist eftir því sem rafhlöðutækni vindur fram. Árið 2035 komist hún 300 kílómetra á rafmagni og 500 kílómetra sem tvinnvél, og fyrir árið 2040 komist hún 400 kílómetra á rafmagni og 600 kílómetra sem tvinnvél.
Áætlað er að hún þurfi 1.100 metra langa flugbraut, fljúgi í allt að 20 þúsund feta hæð og þrjátíu mínútur taki að hlaða rafhlöðurnar á milli flugferða með hraðhleðslu. Með rafmótorum verði hún mjög hljóðlát.
Sama dag og Icelandair skrifaði undir viljayfirlýsinguna um stærri vélina síðastliðinn fimmtudag skýrði Heart Aerospace frá því að kanadíska flugfélagið Air Canada og sænsku flugvélaverksmiðjurnar Saab hefðu bæst í hluthafahópinn, jafnframt því sem Air Canada hefði pantað þrjátíu eintök af vélinni. Áður voru United Airlines og SAS orðnir hluthafar.
United Airlines og Mesa Air Group höfðu áður pantað alls 200 rafmagnsflugvélar af ES-19 gerðinni og uppfærðu pöntunina í ES-30. Í fréttatilkynningu Heart Aerospace segir að til viðbótar hafi fjöldi félaga skrifað undir viljayfirlýsingu um kaup á alls 96 vélum. Í þeim hópi séu meðal annarra norrænu flugfélögin Icelandair, Braathens og SAS.
Heart Aerospace kynnti jafnframt á fimmtudag ákvörðun um að flugvélarnar yrðu smíðaðar í nýrri verksmiðju, sem félagið reisir á Säve-flugvellinum í Gautaborg. Starfsmenn fyrirtækisins eru núna 130 talsins en fjölgar hratt og áætlað að þeir verði orðnir 500 árið 2025.