Hrávara – Gull, rúmmál, þyngd

Grein/Linkur: Hvert er rúmmál gullstangar og hve þung er hún?

Höfundur: Emilía Eiríksdóttir

Heimild:

.

.

Nóvember 2019

Hvert er rúmmál gullstangar og hve þung er hún?

Gull er frumefni með sætistöluna 79 og efnatáknið Au. Gull er mjúkur málmur og einkar eftirsóknarverður, meðal annars vegna stöðuleika hans en gull tærist ekki í lofti eða vatni eins og margir aðrir málmar. Gull er algengt í skartgripum, þá sem blanda af öðrum málmum til að auka hörkuna, en einnig er töluvert af hreinu gulli geymt í bankahirslum víða um heim. Áður fyrr voru margir gjaldmiðlar á svokölluðum gullfæti og þeir sem vilja kynna sér það hugtak nánar geta lesið svar við spurningunni Hvað er gullfótur og hverjir eru kostir hans og gallar?

Gull er mjög þungur málmur. Einn lítri af gulli vegur 19,3 kg.

Á Safnanótt Seðlabanka Íslands í febrúar 2019 var gestum og gangandi boðið að lyfta gullstöng í eigu bankans. Gullstöngin vóg um 401 únsu[1] sem gerir um 12,47 kg. Hægt er að reikna út rúmmál hlutar samkvæmt eftirfarandi jöfnu:

V=mρ

þar sem V er rúmmál, m er massi og ρ er eðlismassi hlutarins.

Ef massi gullstangarinnar er settur inn í jöfnuna auk eðlismassa gulls, sem er 19,3 kg/l (við herbergishita), fáum við út að rúmmál hennar var 0,646 l:

V=12,47kg19,3kg/l=0,646l

Eins og sést á eðlismassa gullsins þá er gull mjög þungur málmur. Einn lítri af gulli vegur 19,3 kg en einn lítri af vatni vegur um 1,0 kg. Mörgum var því brugðið þegar þeir reyndu að lyfta litla gullklumpnum því hann reyndist mun þyngri en hann leit út fyrir að vera.

Seðlabankinn á 159 gullstangir, sem geymdar eru í bönkum í Bretlandi og Bandaríkjunum. Heildarþyngd gullstanganna er því 1813 kg og heildarrúmmál þeirra 94,0 l. Gullstöngin sem var til sýnis var metin á 63 milljónir króna. Heildargullstangaforði Seðlabankans er því um 10 milljarða króna virði en þetta er einungis lítill hluti af gjaldeyrisforða Íslands.

.

Tilvísun:

  1. ^ Þarna er átt við svonefnda Troy-únsu. Ritstjórn Vísindavefsins þakkar Stefáni Jóhanni Stefánssyni, ritstjóra í Seðlabanka Íslands, fyrir að benda okkur á það.

Mynd:

Fleira áhugavert: